Wednesday, December 26, 2012

Amerísk jól :)

jæja þá er komið að því fyrsta bloggið sem 18 ára stelpa :). Afmælisdagurinn minn var alveg frábær :).  Hann byrjaði á laugardagskvöldið þegar að ég fékk afmælisgjöfina mína frá Fem sem að var bíómiði á Hobbitann ( eina leiðin fyrir mig til að fá hana að fara með mér á hana ;P). En fyrir myndina fórum við heim til Izzy að baka afmælis eplabökuna mína :). Þegar að ég kom heim úr bíóinu þá voru mamma og pabbi hérna úti búin að skreyta herbergið mitt með happy birthday blöðrum og plaggötum :).  Þegar að ég vaknaði þann 16. þá fékk ég afmælisgjöfina mína frá Elise og Leigh sem að var snuggy teppi (teppi með ermum og vösum) og mynd með nokkrum myndum frá ferðum mínum síðan að ég kom og svo smá nammi :). Síðan var skypað við mömmu og pabba og opnað gjafir eftir langa bið :). Etir að ég var búin að skypa mömmu og pabba og Gunnar að þá fór ég í jólaboð AFS og var það bara mjög skemmtilegt :) við fórum í broomball, sem að er alveg eins og íshokkí á svelli og allt bara ekki á skautum og í staðin fyrir kylfu þá notuðum við kúst sem að var bara mjög gaman (ég var ein af þeim fáu sem að datt ekki neitt á svellinu og er ég mjög stolt af sjálfri mér :)). Þegar að allir voru að fara heim að þá var komið með köku fyrir mig og Jessie (skiptinemi frá hollandi sem að á líka afmæli þann 16. desember) en manneskjan sem skreytti kökuna var greinilega búinn að gleyma því að ég átti líka afmæli því að kakan var mjög fallega skreytt með afs og til hamingju með afmælið Jessie á hollensku og allt en ekkert með nafninu mínu :( en ég fékk samt köku og það var sungið fyrir mig líka :).  Allavega að þá var afmælisdagurinn minn bara mjög fínn :).


Skólinn fór ekki í jólafrí fyrr en að 21. des sem að var á föstudaginn síðastliðinn og var biðin alveg endalaus síðustu vikuna en loksins var ég komin í jólafrí og fór í jólaboð í Austin hjá bróðir Elise :). Konan hans er frönsk og var meira en helmingurinn af fólkinu í jólaboðinu franskt en það var ekkert mál því að við unga fólkið fundum okkur eithvað skemmtilegt að gera og fórum í klettaklifur klukkan 12 um kvöldið og var það bara mjög skemmtilegt :). 


Aðfangadagur var án efa furðulegasti aðfangadagur sem að ég hef upplifað. Ég vaknaði um 10 leitið og fór til Fem að klára að pakka inn gjöfinni handa bræðrum mínum. Eftir það fór ég með Jamie bróður mínum og Martin (danski skiptineminn sem er hjá okkur um jólin því fjölskyldan hans fór til Ítalíu um jólin) í ræktina, sem að var reyndar frekar mikill bömmer þar sem að ég gat ekki gert neit því að ræktin lokaði snemma og Martin og Jamie voru að klára settið sitt og svo ætlði ég að gera því að ég er aðeins lágvaxnari en þeir og við nenntum ekki að vera að skipta um stillingarnar alltaf, en það var allt í lagi því að ég gerði bara mínar egin æfingar þegar að ég kom heim :). Allavega eftir að ég kom heim þá skypaði ég mömmu, Pabba, Agötu, Aron og ömmu þar sem að þau voru búin að opna allar gjafirnar og búin að hafa svaka kósí kvöld án mín. Eftir að ég var búin að skypa þau þá skypaði ég Gunnar og svo fór ég að gera mig klára fyrir "christmas eve dinner" hjá Mark og Mary (fjölskylda Fem skiptinemans frá Hollandi). Fyrsta skipti síðan að ég man eftir mér þar sem að ég er ekki í mínum fínustu fötum á aðfangadagskvöld, en ég tók þá ákvörðun að vera smá í fínna lagi og fór í aðeins fínni föt en vanalega. Allavega í forrétt hjá þeim fengum við kjötsúpu, já KJÖTSÚPU sem að við fáum alltaf á sprengidag nema þessi var ekki með saltkjöti.  Eftir mat skiptumst við á gjöfum við þeirra fjölskyldu og fékk ég að opna 1 gjöf frá Mark og Mary, þau gáfu mér mjög þægilegar náttbuxur :). Eftir gjafaskipti fórum við heim því að Mark og Mary þurftu að fara í krikju og fjölskyldan mín fer ekki í kirkju (sem betur fer þar sem að ég hata að fara í kirkju :/. ) Þegar að ég kom heim horfði ég á magic Mike með Martin og fór svo að sofa. Í nótt var svakalegt þrumuveður og ótrúlega mikil rigning og voru þrumurnar alltaf að vekja mig þannig að ég svaf ekki neitt svakalega vel í nótt en svaf samt alveg þangað til 11 þannig að ég fékk nógan svefn :). Þegar að ég vaknaði fór ég fram að athuga hverjir væru vakandi og komst að því að strákarnr voru enþá sofandi en þeir voru fljótt vaktir til að opna gjafir. Ég fékk mikið af gjöfum og vil ég þakka öllum fyrir gjafirnar þeirra þær eru allar æðislegar :). Eftir að við vorum búin að opna allar gjafirnar þá voru strákarnir (21, og 20 ára) frekar hyper og komst ég að því að jóladagsmorgun breytir þeim víst í 5 ára krakka :). Um hádegisbil þá tók ég eftir því að það var snjókoma úti :) WOHOOO  ég var svo ánægð þar sem að þegar að Elise sagði mér frá veðurspánni og ég var að segja fólki frá því þá sögðu allir að ég ætti ekkert að vera að búast við því að fá jólasnjó og að ég myndi örugglega ekki fá neinn snjó en ég fékk jólasnjóinn minn :). Það snjóaði til 5 og er snjórinn enþá úti en er það víst mjög sjaldgæft í Dallas. Þetta var fyrsti jólasnjór fjölskyldunnar og strákarnir hlupu allir út og    tóku upp hvernig snókoman var og létu eins og 5 ára krakkar aftur :). Restin af deginum var bara mjög svipuð jóladeginum heima bara setið og slakað á, horft á myndir og eithvað.  


Allavega þetta var Texas jóla upplifunin mín :) 


Jólakveðja


-Sunneva

Friday, December 7, 2012

tanksgiving

Komiði nú sæl og blessuð, ég veit að ég er ekki beint búin að vera dugleg að blogga að undanförnu en það er hreinlega bara afþví að það er ekkert mikið búið að vera að gerast og ég hef ekki haft neitt svakalega mikið til að blogga um. 


En allavega að þá var thanksgiving í lok nóvember eins og flest allir vita og var það bara mjög skemmtileg upplifun. Ég þurfti að fara í skólann á mánudeginum og þriðjudeginum og svo fékk ég frí restina af vikuni og voru flest allir mjög pirraðir því að vanalega er öll vikan frí nema í ár :(. Allir strákarnir og svo Rosie komu heim til þess að borða þakkargjörðarkvöldmat með fjölskyldunni og var það mjög gaman þar sem að ég var ekki búin að sjá þá í langan tíma :). Við skemmtum okkur konunglega og fórum út að spila kassa (aðeins meiri advanced en samt basicly sami leikur og við spiluðum úti í frímínótum í grunnskóla). Á þakkargjörðardagsmorgun fór ég með systkinum mínum niður í bæ og tókum við þátt í hlaupi sem kallast the turkey trot og er það 8 mílur. Ég ákvað að vera snillingur og taka ipodinn minn með og mæla hversu mikið það væri í km og kom í ljós að ég hljóp í kringum 18km undir 2 tímum :). Þetta hlaup var mjög skemmtilegt en eftirá þar sem að ég er ekkert búin að vera að hlaupa neitt síðan að ég kom hingað að þá voru lappirnar mínar alveg dauðar eftir á sérstaklega þar sem að kvöldið áður þá fór ég og gerði þrek með Jamie og vorum við að gera mjög mikið af hnébeygjum þar. Þegar við komum heim var bara svona afslappandi dagur eins og á gamlárs þar sem að kalkúnn var í ofninum. En þegar að kom að matnum þá hélt ég að ég væri að fara að fá kalkún en fékk víst týpíska Texas þakkargjörðarmáltíð, turducken (kjútlingur inni í önd sem er inni í kalkúni) já þetta er í alvöru ekki djók :). Eftir matinn fórum við í bíó á einvherja mynd sem að ég man ekki hvað heitir en hún var mjög skemmtileg. Á leiðinnni heim var klukkan orðin 12 og búðirnar að opna á black friday!!. Við sáum biðraðirnar og öll bílastæði full og allt og vorum ánægð að við værum búin með öll jólainnkaup. Skiptineminn frá Þýskalandi spurði mig hvort ég vildi koma með henni að versla á black friday en ég ákvað að gera það ekki þar sem að ég gat varla labbað útaf harðsperrum og var mjög þreytt og búin að kaupa allar jólagjafirnar. Á laugardeginum pakkaði ég inn öllum jólagjöfunum sem ég var að fara að senda heim og setti þær í kassa til að senda til íslands.


Vikan eftir thanksgiving var bara mjög venjuleg vika ekki neitt svakalega mikið að gerast þar. Einn dag vikunar bað sögukennarinn mig um að koma í 2 tíma hjá henni til að tala um Ísland og íslensku og hversu mikið er öðruvísi hér og á íslandi og eithvað því að í Human geography (veit ekki íslenska orðið fyrir þennan tíma ) tímunum hennar var hún að tala um tungumál og töluðu þau um íslensku og eithvað svoleiðis. Allavega að þá gerði ég það fyrir hana og var hún mjög ánægð með það og í báðum tímunum voru einvherjir krakkar úr sundliðinu þannig að ég þekkti nokkra krakka þarna og voru þau að spurja mig fullt af spurningum um tungumálið og hvernig við berum fram einvher orð og eithvað svoleiðis. Ég ssagði þeim frá eyjafjallajökull og hvernig mikið af þessum hljómum eiga þau erfitt með að bera fram og svo reyndi ég að kenna þeim að segja stóll því að þau ná ekki ll hljóðinu og var það mjög skemmtilegt. Eftir þetta þá er það fyrsta sem að Stuart (strákur í sundliðinu mínu) segir við mig þegar að hann hittir mig orðið stóll því að hann vill ná að bera það fram rétt og á endanum þá náði hann því :).


Í síðustu viku var sundmót, frekar stórt sundmót þar sem að það voru 5 skólar en ekki bara við og einvher 1 annar. Ástæðan fyrir því er sú að við áttum að hafa annað mót vikuna fyrr en því var frestað og bætt öðrum skólum við sem að við áttum að keppa við vikuna seinna og eithvað lið sem átti að keppa við hinn skólan á þessum degi og eithvað. En allavega að þá var ég að keppa í 200yards fjórsunds boðsundinu (flugsund auðvitað) og bættum við tímann okkar um 4 sekondur :), 100 yard flugsund þar sem að ég bætti tímann minn niður í 1.08.61 sem að jafngildir í kringum 1.14 eða 1.15 í metrum sem að er besti tíminn minn hingað til og er ég mjög stolt af sjálfri mér :), síðan keppti ég líka í 200yard skriðsundi en það var ekki neitt svakalega vel gert hjá mér :/. Stelpurnar lentu í 1. sæti á þessu móti og strákarnir í 3.. Í næstu viku er City meet sem að er svakalega stórt mót þar sem að allir skólarnir í dallas eru að fara að keppa á því og við erum mjög vel sett fyrir það mót þar sem að allir eru búnir að vera segja við þjálfaran að hún sé með mjög sterkt lið í ár :). 


Ég er búin að fá allar sendingar sem að ég er búin að búast við með pökkum og er mjög erfitt að  horfa á afmælisgjafirnar mínar og meiga ekki opna þær þar sem að afmælið mitt er ekki fyrr en að eftir 9 daga :(. En ég næ samt að harka það af mér því að það er ekkert gaman að opna gjafirnar sínar fyrir afmælisdaginn :). Pakkinn frá mömmu og pabba var æðislegur þar sem að í honum var jóla og afmælisgjafir ásamt slatta af íslensku nammi sem að ég er búin að sakna svo mikið :) og var það einmitt það sem að ég þurfti :). Ég fór með smá af hverri tegund í skólann til að gefa vinum mínum og allir elska möndlur en krakkarnir í sundliðinu eru ekki neitt svakalega mikið fyrir lakkrís þannig að þeim líkaði ekki við íslenska saltlakkrísinn (alltof salltaður), kúlusúkk né bingó kúlur :O sem að ég skil alls ekki hvernig er hægt því að bingókúlur er eitt af því besta nammi sem að ísland framleiðir en þau eru bara ekki vön því :).


Vó ég er búin að vera hérna í 4 mánuði, tíminn líður ekkert smá hratt. Dvölin næstumþví hálnuð :O áður en ég veit af því verð í flugvélinni á leiðinni heim :) :/. 


nóg í bili
-Sunneva 


Tuesday, November 13, 2012

halloween og ferð til vestur Texas

Verið nú blessuð og sæl, ég afsaka hversu langt það hefur verið síðan að ég bloggaði það hefur bara ekki mikið verið að gerast nema skólinn.  Ég vil einnig biðjast afsökunar á öllum stafsetningarvillum sem að ég mun gera í þessu bloggi, ég skal gera mitt besta að gera engar villur en ég er ekki beint sú skarpasta þegar að kemur að stafsetningu og þegar að ég heyri enga íslensku eða neitt að þá versnar það enþá meira. 


Allavega að þá var halloween fyrir 2 vikum og var það mjög gaman. Það hitti reyndar svo illa á að halloween var á miðvikudegi þannig að ekki var hægt að hafa partý eða eithvað skemmtilegt á þeim degi. Laugardaginn áður var mér og Fem boðið í block party af vini okkar og var það eiginlega eins og ljósanótt eða eithvað í þá áttina því að fólk var bara að labba upp og niður götuna að hitta fólk og fara inná klúbbana. Þetta partý var einnig einhver fögnuður samkynhneigðra eða eithvað þannig að það voru mjög skrautlegir búningar í þessu partýi :). Það var ótrúlega skemmtilegt í þessu partýi en við vorum ekki lengi þar sem að okkur var skítkalt og vinir okkar voru að reyna að komast inn á klúbbana og þar sem að við meigum ekki fara inn á klúbbana ákváðum við að fara heim. Á halloween þá var venjulegur skóladagur og var gerð sérstök tilkynning í skólanum að við máttum ekki koma í búningum í skólanum og það á bara að fylgja dresscodinu, sem að er fáránlegt því að greinilega að þá eru bandaríkjamenn með þá reglu að þú mátt ekki vera í þægilegum fötum í skólanum því að ég má ekki vera í swetpanths sem að eru þægilegar joggingbuxur nema að þær séu merktar skólanum eða tengjast skólanum á einhvern hátt, sem sagt bara gallabuxur eða pils. Allavega að þá á halloween að þá ætluðu ég og Fem að fara að sníkja en síðan hættum við við þar sem að Fem fanst það vera frekar fáránlegt að vera 17 ára og fara að sníkja og henni langaði að eyða kvöldinu með Edu (kærastinn hennar), og ég ætlaði alls ekki að fara ein að sníkja, og þar sem að ég hef sníkt á þrettándanum ákvað ég að vera bara heima og gefa litlum krökkum nammi og var það ekkert smá krúttlegt. 


Nóg um halloween, þá er komið að síðastliðinni viku. Þessi vika var nú í rauninni ekki neitt öðruvísi en allar hinar vikurnar nema það að þessi vika var bara 4 skóladagar þar sem að ég fór í ferð til vestur Texas á föstudeginum. Á fimmtudaginn var sundmót á móti liði sem að er víst alltaf ákveðið í að vinna okkur en á þessu móti að þá unnum við þau held ég, Ég bætti mig í báðum greinunum sem að var 100 flug og 100 bak (yards ekki metrar), ég átti 1.12 í 100 flug og fór á 1.10 og átti 1.18 í 100 bak og fór á 1.16 :). Á föstudaginn vaknaði ég eldsnemma og löggðum við af stað um 7 leitið og keyrðum til vestur Texas og vorum komin á leiðarenda klukkan 4 (lengst út í buska langt frá allri menningu). Eftir að við vorum búin að tjékka okkur inn þá var farið í gönguúr um hverfið. Við borðuðum kvöldmat á McDonald abservatory og fórum á einhverja stjörnusýningu og var það ekkert smá fallegt við gátum meira að segja séð milkyway vetrabrautina þar sem að það var svo stjörnubjart og engin ljós í kring og er það eitt af því fallegasta sem að ég hef séð. Á laugardaginn var vaknað eldsnemma og farið í morgunmat og síðan í fjallgöngu í einhverjum national park sem að ég man ekki hvað heitir en var það ekkert smá fallegt. Göngutúrinn tók í kringum 2 klukkutíma og fórum við síðan aftur á hótelið og þurfturm að gera smá heimalærdóm þar sem að við vorum frá skóla í 2 daga og þurftum að skila inn verkefnum fyrir fjarveru okkar og nokkur próf í þessari viku. Laugardagskvöldið fórum við til smábæjar (minni en grindavík) og fengum okkur að borða á litlum krúttlegum veitingastað og maturinn var ekkert smá góður. Eftir kvöldmat fórum við uppá einhverja hæð og horfðum aftur á stjörnunar og var það alveg jafn fallegt og kvöldið áður. Á sunnudaginn keyrðum við alla leiðina til Nýja Mexico og fórum í gegnum einhvern helli. Þótt að ég sé íslendingur og vön hrauni og steinum og því öllu að þá var þetta fallegasti hellir sem að ég hef farið í. Við löbbuðum niður í einn og hálfan tíma og var allt mjög fallegt, við vorum inni í hellinum í kringum 2 tíma og tókum síðan lyftu upp. hellirinn var í kringum kílómeter djúpur. Á mánudaginn var deginnum eytt í bílferð á leiðinni heim og var það mjög skemmtileg bílferð.  Þessi ferð var frábær leið til að fagna því að ég hef verið hérna í 3 mánuði og ein af mínum uppáhalds reynslum hingað til.

myndir koma bráðlega á feisbúkk


Ég hef heyrt að fólk hefur ekki getað commentað á bloggin hjá mér þannig að í staðin fyrir að commenta hér þá getið þið commentað á feisbúkk :)


Ekki meira í bili 


Sunneva





Wednesday, October 17, 2012

State fair

Jæja hér kemur enn eitt bloggið.

Síðasta vika var bara mjög venjuleg vika, fór á æfingar á morgnanna og í skólanum til hálf 5. Ekkert nett svakalega spennandi í gangi í skólanum. 

Á föstudaginn síðasta var fair day sem þýðir að það er enginn skóli og við fengum fría miða á state fair. Á fimmtudaginn eftir skóla fórum ég, Fem og Izzy að versla afmælisgjöf handa Elise því að hún átti afmæli á laugardaginn, hún varð 59 ára :). Við erum ekki neitt svakalega góðar í að finna gjöf þar sem að við keyptum meira handa okkur heldur en henni :/. Loksins fundum við frábæra hugmynd um afmælisgjöf en við gátum ekki keypt hana í mollinu sem að við vorum í þannig að við fórum heim og hittum Martin (nýi skiptineminn frá danmörku sem kom í homecoming week) sem var heima hjá mér alla helgina því að Elise er tengillin hans og fjölskyldan hans var að fara eithvert um helgina. Við fórum og keyptum hvítan stuttermabol og skreyttum hann með fánunum,nöfnum og löndum okkar og svo árið sem að við erum hér. Bolurinn var ekkert smá flottur. 

Á föstudaginn fórum við (ég, Fem, Martin og Izzy) á Texas state fair og var það ekkert smá mikið fjör. Ég smakkaði djúpsteikt snickers (hljómar mjög illa en er í rauninni ekkert smá gott :)), fór að skoða fiðrildasafn, fór eina ferð í parísarhjólinu og margt fleira skemmtilegt. Þegar að við komum heim þá var Tommy kominn heim og hann kom með herbergisfélaga sinn úr college, Kilian (hann er frá Þýskalandi), og fórum við út að kasta á milli rúbbí bolta (amerískum fótbolta) og var það mjög gaman. Síðar um kvöldið kom Rosie (systir mín sem býr í Houston) og við fengum okkur öll pizzu að borða. Á meðan að við vorum að borða þá komu 2 breskir vinir Tommy og Willie og fengu sér að borða hjá okkur og svo seinna um kvöldið eða eithvað í kringum 12 þá kom Willie með rútuni. Húsið var troðfullt af fólki, við vorum í kringum 12 manns, aðfaranótt laugardagsins því allir vildu vera hérna á afmælisdegi Elise, eina manneskjan sem að vantaði var Jamie en það var bara afþvi að hann er í skóla í 10 tíma fjarlægð og er því frekar erfitt fyrir hann að skreppa hingað yfir helgi. Á laugardeginum fórum við öll saman á the fair og sá dagur var miklu skemmtilegri heldur en föstudagurinn því að í þetta skipti fórum við útum allt og prófuðum miklu fleira en við gerðum á föstudeginum. Ég fékk loksins að smakka fried oreos sem allir voru búnir að segja mér að ég ætti að smakka og var það líka mjög gott (fried oreos er samt miklu betra). Við vorum á the fair frá 11 til hálf 6 og var sá dagur mjög skemmtilegur. Við fórum á fuglasýningu, hundasýningu, bílasýningu og við sáum mikið af hlutum. Texas state fair hefur allt meira að segja djúpsteiktan bjór. En allavega við vorum svo mörg að við þurftum að splitta up til að komast heim, þar sem að flestir komu með lestini og eitt holl fór með bíl því að þau voru að fara á leikinn þá splittuðum við okkur niður þannig að Elise og Leigh fóru með lestinni, Edu og Fem fóru með annari lest heim til hans að sækja bílinn hans og komu svo heim og ég,Martin,Rosie,Tommie og Willie fórum á bílnum heim. Á leiðinni heim stoppuðum við til að kaupa afmælistertu handa Elise. Þegar við komum heim höfðum við stóran kvöldmat heima (takeaway matur) og höfðum það kósí. Eftir kvöldmat fórum við út að spila four square sem að er tegund af fótboltaleik ég held að þetta sé leikurinn sem að allir voru að spila í frímínotum í grunnskóla ég held að við kölluðum það kassi. Um 10 leitið fóru ljósin af vellinum sem við vorum að spila á þannig að við fórum að skóla sem að er rétt hjá húsinu mínu og spiluðum körfubolta sem að var mjög gaman.
Á sunnudagsmorguninn gerði ég heimalærdóminn minn á meðan að Martin var að tala við vini sína frá Danmörku á skype og var ég mjög stolt af sjálfri mér því að ég skildi megnið af samtalinu hans með minni litlu kunnáttu á dönsku :).  Martin átti víst einhvern Íslenskan vin sem að kenndi honum og vini hans að segja haltu kjafti og afþví að vinur Martins vissi að ég væri frá íslandi þá sagði hann haltu kjafti og ég var mjög hissa og spurði martin út í það og hann sagði að Íslenski vinur þeirra hafi kennt þeim að segja haltu kjafti útaf einhverju atriði úr fóstbræðrum haha.  Allavega að eftir að ég var búin að gera heimalærdóminn minn þá fórum við í verlsuaferð með Edu þ.e.a.s ég Martin, Fem og Edu. 

Mánudagurinn var bara venjulegur dagur, fór á sundæfingu um morguninn, skólann til hálf 5 og svo á fótboltaleik hjá vini mínum. Á þriðjudaginn var sundmót eftir skóla. Þetta sundmót var ekki eins og venjuleg sundmót því að núna vorum við bara að keppa á móti einum skóla.  Þjálfarinn minn vissi að þessi skóli væri ekki neitt svakalega góður þannig að hún lét alla synda það sem að þau eru ekki vön að synda eða þá grein sem að þau eru mjög léleg í. Ég var til dæmis að synda 200 fjór og síðan 100 bringu ( fyrir þá sem vita  það ekki að þá er ég mjög léleg í bringusundi það liggur við að það þurfi dagatal til að taka tímann á mér). Allavega að þá gekk sundmótið alveg ágætlega, tíminn minn í bringu var í kringum 1:30 en ég man ekki fjórsundstímann minn. Eftir mótið þá fór ég, Elise, Fem og Edu út að borða á the Taccaria sem að er mexikanskur matsölustaður og er uppáhalds staðurinn hennar Elise.  

Á miðvikudaginn (í dag) þurfti ég ekki að mæta í skólann fyrr en um 1 því að það var PSAT(PSAT er svipað og samrændu prófin, einhverskonar próf sem segir þér hvar þú stendur fyrir college og hvort þú þarft að bæta þig í einhverju eða ekki) sem að ég þurfti ekki að taka af því að ég er skiptinemi :). Og það var engin æfing um morguninn útaf prófinu þannig að ég gat loksins sofið smá út :).  

Þetta blogg var aðeins lengra en ég ætlaði mér en ég hafði bara frá svo miklu að segja :)

Ekki meira í bili 

-Sunneva


Saturday, October 6, 2012

homecoming og fyrsta sundmótið

jæja þá er loksins komið að því að ég er búin að upplifa mitt fyrsta homecoming :). Sá dagur var fullbókaður. Ég vaknaði snemma um morguninn til að fara á fysta AFS námskeiðið :) það var alveg nett mikið fjör. námskeiðið átti að vera til 4 en af því að það var homecoming hjá mér að þá fengum við skiptinemarnir úr white að fara fyrr (white er stytting á W.T.White high school) svo við fengum tíma til að gera okkur klár. Við fengum nú samt ekki mikinn tíma því að við fengum bara að fara hálftíma fyrr eða um 15:30. Klukkan hálf 6 ætluðum við að taka myndir heima hjá einhverjum vinum fjölskyldu Issie (skiptineminn frá þýskalandi) þannig að við höfðum 2 tíma til að koma okkur heim, fara í sturtu, mála okkur og gera hárið okkar fínt. Það reyndist ekki vera nógu langur tími því að við fórum til Issie að gera hárið á okkur og enduðum allar í halarófu að gera hárið á hvorri annari en vorum samt á mörkunum með að vera of sein. Allavega loksins vorum við tilbúnar, allar með fínt hár og svoleiðis og fórum af stað. Til að bæta gráu ofan á svart að þá var hellidemba úti þannig að allar hárgreiðslur fóru út um allt út af rigningunni. En allavega að þá fórum við að borða á steikhúsi fyrir ballið og var það ekkert smá gott. Þetta kvöld var alveg æðislegt. 


Þá er komið að sundmótinu :)
Við áttum að vera komin upp í skóla klukkan hálf 7 og rútan fór af stað um korter í 7. það tók í kringum  hálftíma að keyra þar sem að sundmótið var og var ekkert smá mikill fjöldi af fólki þarna. Það þurfti að skipta upphitunum niður í 4 parta til að allir kæmust fyrir. Á þessu móti voru 24 skólar að keppa og í kringum 548 nemendur. Allavega að þá eru amerísk sundmót í rauninni ekki neitt mikið öðruvísi heldur en þau íslensku nema það að það er ekki keppendaherbergi, þú verður sjálf/ur að fylgjast með hvaða grein er í gangi en þú sérð ekki inn í laugina. Á þessu móti þá vorum við með sérstakan stað á gangi skólanna þannig að við sáum sundlaugina ekki þannig að enginn gat verið mikið að fylgjast með hvaða grein væri í gangi. Svo er taflan sem að segir hvaða grein er í gangi og hver tíminn þinn var ekki með nafnið þitt á henni þannig að þú verður að muna sjálf/ur í hvaða grein,riðli og hvaða braut þú ert á. Allavega þá byrjaði ég að synda 50yards flug í 200yards fjórsunds boðsundi og synti það á 31 sekondu :) veit ekki alveg hvort að það sé góður tími en ég held að það sé alveg ágætur tími fyrir yards :). eftir það þurfti ég að bíða í kringum 1 og hálfan tíma þangað til að ég synti næst. Næsta greinin mín var 100 flug. Ég synti það á 1.12.36 og nældi mér í 2. sætið wohooo!. Eftir flugið beið mín önnur löng bið þangað til að ég átti að synda 100 bak. Ég synti 100 bak á 1.20.60 sem að er bæting á tímanum mínum í 100m (ég breytti tímanum úr yards yfir í metra). Eftir baksundið var ég búin.  Á íslandi þegar að við höfum sundmót þá splittum við oftast greinunum niður á laugardag og sunnudag og stundum seinnipart föstudags en þarna þá var þetta allt sett niður á einn dag þannig að við vorum ekki komin aftur heim fyrr en hálf 7 þannig að þetta sundmót tók í kringum 12 tíma, eða sundmótið sjálft tók í kringum 11 tíma. 


ekki meira í bili
-Sunneva

Tuesday, September 25, 2012

langt síðan síðast

Fyrst af öllu þá vil ég biðjast afsökunar á því hvað það er langt síðan að ég bloggaði síðast það hefur bara verið svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma til þess að blogga. En allavega þá byrjuðu sundæfingarnar í síðustu viku og voru fyrstu 2 dagarnir bara þrek og ekkert sund og ekki bara það að þá var ég með hálsbólgu og kvef (alltaf er ég jafn heppin). Þannig að alla síðustu viku þá gekk ég um eins og spítukall og hóstandi. Þrek æfingarnar voru sem sagt á mánudag og þriðjudag og svo var sund á miðvikudag og fimmtudag en frí á föstudag :). Æfingarnar eru mjög léttar akkúrat núna af því að sumir í liðinu eru enþá að læra að synda þannig að það þarf alltaf smá tíma fyrir þau að læra.  Í þessari viku erum við að læra öll "strokin" þ.e.a.s flug, bak og bringu. Og laugardaginn 8. okt þá er fyrsta sundmótið mitt og er ég úber spent fyrir því.

Í þessari viku er homecoming :) ég er ekki með date eins og Fem sem að var spurð í dag á geðveikt krúttlegan hátt. Allavega að þá eru allir dagar í þessari viku þemadagar og í gær var hippaþema, í dag var 20's þema ( sem að eiginlega enginn tók þátt í því að ekki eiga margir 20's föt haha), á morgun er svo besti dagurinn 80's (því miður skildi ég öll 80's outfittin mín eftir heima á Íslandi ), á fimmtudagin er 50's þema og svo á föstudaginn er appelsínugulaðu þig upp (orange out) :). Um síðustu helgi fór ég með Elise til Austin að hitta Willie og Tommy og bróðir hennar. það var ekkert smá fjör, labbaði aðeins um downtown dallas, skoðaði mig um í Texas capitol sem er ekkert smá falleg bygging, borðaði Ribs (í fysta skiptið ). 

Lærdómur á ensku er enþá frekar erfiður en þetta verður aðeins auðveldara því lengra sem líður á dvölina :). Þegar að ég var að skrifa niður dagsetninguna í dag í skólanum þá tók ég eftir því að ég er næstum því búin að vera hérna í 2 mánuði :O. Vá hvað tíminn líðut hratt mér finst enþá eins og ég hafi kvatt ykkur öll í gær. Áður en ég veit af verð ég komin aftur heim haha.  
Í vikunni komst ég að því að það er annar skiptinemi frá Danmörku í skólanum sem er nýkominn og er Elise trúnaðarmaður hans og mun hann mjög líklega eyða jólunum með okkur sem verður bara mjög mikið fjör. 

Ég mun mjög líklega ferðast meira um Texas á næstu mánuðum því að Elise vill sýna mér alla skemmtilegu staðina :). Þann 13. oktober erum við búin að plana að fara með Afs í countrydans og spái ég því að það verði ekkert smá mikið fjör :) og ekki bara það að það sé skemmtilegt að dansa að þá er þetta líka afmælisdagurinn hennar Elise :).

endilega skiljið eftir ykkur komment annars finst mér eins og að ég sé að skrifa bara fyrir mig ;P

Ekki meira í bili hérna handan við hafið

-Sunneva


Monday, September 10, 2012

mánuður liðinn :)

jæja þá er ég búin að vera hérna í heilan mánuð :O mér finst enþá eins og ég hafi lent hérna í bandaríkjunum í gær. En allavega að þá er vikan mín búin að vera bara ósköp venjuleg skólinn byrjaður á fullu og er aðeins erfiðara að læra á ensku en ég hélt en ég er að ná tökunum á því :).
Tryouts fyrir sundliðið voru í síðustu viku og komst ég inn í varsity liðið sem þýðir að ég verð meira að keppa og svoleiðis :). Tryouts var frekar skrítið ég var ekkert smá stressuð búin að vera að hlusta á tímana hjá öllum og fékk alveg sjokk afþví að tímarnir þeirra voru svo góðir, þegar að við byrjuðum loksins að synda þá var þetta bara eins og skólasund í 8. bekk, syndiði 4 ferðir skriðsund og hvíla í 10 sek á milli. Þegar tryouts var búið fattaði ég að ástæðan fyrir því að tímarnir hjá öllum voru svona góðir er af því að laugin er 25 yards en ekki metrar sem þýðir að sundlaugin er í kringum 20m ekki 25 :).
Á föstudaginn fór ég á minn fyrsta ameríska fótboltaleik :) þessi leikur er alveg óskiljanlegur og skrítinn en þetta var samt alveg eins og í bíómyndunum þegar að klappstýrurnar eru í kring og allt það var geðveik upplifun að fara loksins á leik :).
Á laugardaginn var fyrsta ballið í skólanum (luau) hawaii þema og var ég búin að hlakka ekkert smá til að fara loksins á amerískt ball en komst síðan að því að böll í high school eru víst eins og grunnskólaböll þar sem allir annahvort sitja og gera ekki neitt eða hoppa eins og fávitar :) en það var samt mjög skemmtilegt að fara.
Á sunnudaginn fór ég með Issie (skiptineminn frá þýskalandi) og Fem (skiptineminn frá hollandi) að spila blak með öðrum skiptinemum og var það ekkert smá mikið fjör. Þegar að ég kom aftur þá fór ég með Elise á softball leikinn hennar sem var búið að fresta 2x vegna rigningu. Ég var ekkert smá spent að fá að sjá loksins hvernig þessi leikur virkar og komst svo að því að softball er bara mjög líkt kíló :). Elise vann báða leikina sína og var því liðið hennar champions. Á meðan að hún var að spila var ég að passa lítinn strák sem ein konan í liðinu átti og var hann ekkert smá mikið krútt aðeins 5 mánaða gamall :).
Homecoming er eftir 3 vikur og hlakka ég ekkert smá mikið til að fara á það :) spurningin er bara hvort að ég mun hafa date eða ekki haha :)
ekki meira í bili
-Sunneva

Monday, September 3, 2012

fyrsta vikan í high school

jæja þá er loksins komið að því ég er byrjuð í high school :) Fyrsta vikan búin og var hún frábær. Draumurinn minn er samt ekki enþá alveg fullkominn því að ég er því miður ekki enþá komin með skáp :( haha en það kemur á endanum vonandi:)Allavega að þá hefur fyrsta vikan verið skemmtileg blanda af erfiðleika, skemmtun og vandamálum. Fyrsti dagurinn byrjaði ekki neitt svakalega vel, ég átti að finna nafnið mitt á einhverjum lista til að finna hvert ég átti að fara í fyrsta tíma og fá stundatöfluna mína. Þegar að ég kom í skólann og fann þennan lista þá var ég ekki á honum :( þá átti ég að fara í matsalinn og fara í einhverja röð til að fá stundatöfluna mína, ég beið í þessari röð í klukkutíma og var síðan send til námsráðgjafans til að fá stundtöfluna mína. Þegar að ég var komin þangað þá komst ég að því að stundataflan mín var ekki inni í kerfinu þannig að ég þurfti að velja öll fögin mín aftur og valdi sum af þeim vitlaust því að ég fór í AP computer sciense sem var alltof erfitt og færði ég mig úr því í venulegt :) síðan fékk ég loksins stundatöfluna mína og gat byrjað skóladaginn minn :) síðan kom hádegismaturinn, ég þekkti ekki neinn en ég vissi að annar skiptineminn var með mér í hádegismat og ég reyndi að finna hana en fann hana hvergi og ég stóð í mötuneitinu í ca 10 mínotur labbandi útum allt eins og fáviti að reyna að finna hana þangað til að ein stelpa sem var með mér í tíma kom til mín og bauð mér að sitja hjá sér og var ég mjög ánægð með það. Restin af deginum gekk mjög vel þangað til að síðasti tíminn minn kom. síðasti tíminn minn er dans en það var víst einhver misskilningur og þessi danstími átti að vera lokaður danstími en það voru í kringum 70 krakkar og allt blandað frá vönum dönsurum og alveg nýjum eins og mér. ég held að bara ég gæti lent í svona miklum vandræðum á einum degi haha. Restin af vikuni gekk bara mjög vel :) ég fékk mjög margar skrítnar og fáránlegar spurningar um ísland eins og notiði hundasleða og hvað borðiði og hvort íslenska væri tungumál en sú algengasta er hvort að ísland sé kalt eða hvort ísland sé grænt og grænland er ís haha. ég er í sundliðinu en þarf samt að fara í tryouts sem eru á morgun og fáiði að heira meira um það næst.ekki meira í bili-Sunneva

Sunday, August 26, 2012

skráning í skólann og Ródeó

Jæja, ég er búin að vera hérna í 2 og hálfa viku og mér finst eins og ég hafi komið hingað í gær :). Allavega þá skráði ég mig í skólann á þriðjudaginn og tók það ekkert smá langan tíma. Ég og Elise komum þarna um hálf 10 og þurftum að fylla út einhverja pappíra og fara svo í röðina. Röðin var endalaus, við biðum í henni í ca 1 og hálfan klukkutíma þangað til að við fengum loksins að komast inn á skrifstofuna þar sem að þau tjékka hvort þú sért búin að fylla allt út sem á að fylla út. Á meðan við vorum þar inni að þá fór rafmagnið af í skólanum og allt gekk miklu hægar af því að þau gátu ekki gert ljósrit af öllu, en sem betur fer að þá var Elise svo sniðug að hún ljósritaði allt þannig að við vorum með afrit af öllu og gekk allt því hraðar fyrir okkur, eftir að það var búið þurftum við að fara til hjúkkunar og þar var önnur röð, sem betur fer ekki jafn löng og hin þessi var bara 10 min, hjúkkan tjékkaði hvort ég væri búin að fara í allar sprauturnar sem ég þurfti og hvort að þetta væru "up to date" upplýsingar. þegar við vorum búnar hjá hjúkkuni fórum við í aðra 10 mínotu biðröð á skrifstofuna til að þau geti tryggt það að hjúkkan sé búin að samþykkja. Þegar ég var búin þar þá fór ég til Conselor office að velja  fögin mín, en útaf því að það var allt rafmagnslaust að þá gat enginn gert neitt og það var allavega hálftíma bið þannig að við ákváðum að fara heim og koma aftur eftir hádegi. Eftir hádegi kom ég aftur og þá gekk allt miklu hraðar ég þurfti bara að bíða í 5 minotur til að komast til námsráðgjafans og segja henni hvaða fög ég vildi fara í. Ég er að fara að taka ensku, algebru, líffræði (ég fæ að kryfja kött :)), ameríska sögu, sund, tölvu vísindi, spænsku og svo ákvað ég að fylgja í spor bróður míns og taka dans (vantaði eithvað listarfag ).

Rodeo!!!!!!!

Í gær fór ég á mitt fyrsta ródeó. Það var ekkert smá gaman og spennandi. Ég vorkenndi kálfunum samt smá því að þeir voru að binda þá fasta og kipptu fast í bandið utanum hálsin til að stoppa þá og kálfarnir hentust til baka :(.  Fyrst áður en Ródeóið byrjaði þá kom kona ríðandi inn á hesti með ameríska fánan, öll ljós slökkt og ljóskastari á hana og farið var með þjóðsönginn, svakalega amerískt en samt ekkert smá töff. þegar það var verið að kynna keppendurna þá voru flugeldar  og það var ekkert smá töff.  Í hlénu þá voru stelpur sem gerðu nokkurskonar fimleika á hestunum og var það geðveikt töff !! Þessi upplifun er ein af þeim skemmtilegustu sem ég hef upplifað síðan ég kom hingað en það mun örugglega breytast fljótt þar sem skólinn byrjar á morgun :) og blogga ég um það bráðlega. Ég tók nokkur myndbönd og fullt af myndum sem fara á fésið bráðlega :)Ekki meira í bili -Sunneva

Friday, August 17, 2012

þrumuveður, verslunarferð,miðnæturhlaup róðrarferð og sólbruni

Þá er ég búin að vera hérna í meira en viku :O vá hvað tíminn líður hratt, áður en ég veit af því verð ég komin heim haha. Allavega þá upplifði ég loksins ameríska rigningu á þriðjudaginn sem fer beint niður og var það mjög töff. Það var svakalegur þrumustormur og við ákváðum að eyða kvöldinu inni og  fórum í bío :) en þegar myndin var hálfnuð þá heyrðum við allt í einu svakalega þrumu og hljóðið fór af myndinni, eldinginn hitti í einhvern hluta byggingarinnar en það lagaðist allt eftir smá tíma. Miðvikudagsmorgun var Fem (skiptinemin frá Hollandi sem býr í götunni og fer í sama skóla og ég) ekki með neitt rafmagn því að um nóttina fór elding í rafmagnskassann þeirra en rafmagnið kom aftur á eftir smá tíma.Á miðvikudaginn þurfti ég að kveðja Jamie (einn af hóst bræðrum mínum) því að hann var að fara í college í Missori :(. Eftir hádegi skutlaði Marie ( host mamma Fem) mér og Fem í mollið og versluðum við soldið mikið af fötum þar, Fem verslaði fyrir yfir 150 dollara en ég eithvað í kringum 100 :/. Á miðvikudagskvöldið fórum við á fótboltaleik hjá vini Willie (hóst bróðir minn) og var það bara mjög gaman. Á fimmtudeginum gerði ég voða lítið fyrri part dags, um 1 leitið fór ég og Fem með Isobel (hinn skiptineminn frá Þýskalandi sem verður með mér í skóla) að versla smá (ég og Fem versluðum ekki neitt því að við versluðum svo mikið á miðvikudaginn ), eftir verslunarferðina bauð Isobel okkur heim í mat og borðuðum við kvöldmat þar. Ég og Fem komum heim um hálf 11 og ætluðum að chilla smá heima og fara svo að sofa en þá bauð willie okkur að koma með sér út að hlaupa, við ákváðum að skella á það og hlupum í klukkutíma. það var gaman, svolítið erfitt útaf hitanum en samt bara fínt að fá loksins einhverja hreyfingu eftir að hafa verið í viku í Bandaríkjunum.  Þegar við komum heim eftir hlaupið var MJÖG heitt inni í húsinu því að loftræstingin var ekki að virka.     Núna í morgun fórum við kanooing (man ekki alveg íslensku þýðinguna á því en ég held það sé róður). Við lögðum af stað um hálf 10 um morguninn og keyrðum í ca klukkutima því að strákarnir ætluðu aldrey að finna staðinn. Þegar við loksins fundum staðinn þá fórum við út í vatnið og skemmtum okkur konungslega. Þegar að ég kom heim þá tóku strákarnir eftir því að ég var sólbrennd á bakinu og ekkert lítið (ég bar samt á mig sólavörn um morguninn). Afþví að strákarnir voru búnir að vera svo góðir við mig og Fem þá ákváðum við að gera handa þeim eldbakaðar brauðsneiðar sem Fem kunni að gera og smökkuðust þær mjög vel. Síðan ákváðum við að baka smákökur aftur og hepnaðist það miklu betur núna heldur en í hitt skiptið :). Um kvöldið fórum við í sundlaugina á eithvað sem kallast Burger fry og er alla föstudaga, það er þannig að það er grillað í sundlauginni og allir hafa svaka gaman, en það endaði snemma því að það var að koma þrumuveður og lifeguardinn sá eldingu og þá má enginn vera lengur í sundlauginni :(. Allavega að þá er þrumuveður núna og ég sit inni með öllum og hef það kósí :)ekki meira í bili (ætla að reyna að setja myndir inn þegar þær eru orðnar fleiri )Sunneva

Sunday, August 12, 2012

loksins komin til fjölskyldunnar

Jæja eftir að hafa beðið á hótelinu í Houston allan daginn án þess að gera neitt nema hanga þá löggðum við loksins af stað til Dallas. Ég kynntist stelpu frá Slóvakíu og portúgal og var mjög mikið með þeim í þessari ferð. Ég er ekki alveg viss hvað rútuferðin tók langan tíma því að ég sofnaði eithvað smá en ég held að hún hafi tekið í kringum 6 tíma. Um kvöldmataleitið stoppuðum við í ihop, sem er skamstöfun fyrir international house of pancakes og fengum okkur að borða. Síðan var ferðinni áfram haldið til Dallas. Þegar við komum á hótelið þurftum við að láta sjálfboðaliðana hafa læknisvottorðin og vegabréfin áður en við fengum að fara í herbergin. Loksins var ég komin uppá hótelherbergi og fór beint að sofa enda klukkan orðin hálf 2 eða eithvað. Ég fékk að sofa út á föstudeginum og þurfti ekki að vera komin niður fyrr en klukkan 11 í hádegismat og þar hitti ég krakka úr hinum hópnum sem voru búin með arrival campið. Eftir mat var hópnum skipt upp og orientation byrjaði. Um 6 leitið fórum allur hópurinn að fá sér að borða á mexikönskum matsölustað sem var mjög góður. Eftir mat horfðum við á vídjó af krökkunum sem voru að fara heim núna í júni og þau voru að gefa okkur ráð og eithvað svoleiðis. Á laugardagsmorgun var morgunmatur klukkan hálf 9 og endinn á orientation. Loksins kom að besta partinum sem ég var búin að vera að bíða eftir síðan á miðvikudagsmorgun........ég fékk að hitta fjölskylduna og fara með þeim heim. Áður en við fórum heim fórum við og fengum okkur að borða hamborgara sem voru mjög góðir. Eftir það þá keyrðu þau um hverfið með mig og sýndu mér leiðina í skólan og svoleiðis. Elise sýndi mér allt húsið og merkti meira að segja skápana fyrir mig með innihaldinu :). þegar að ég kom inn í eldhúsið þá beið mín lítil karfa með cheetos snakki, oreo, bol merktun skólanum og svo eithvað svona bað stuff og framaná stóð welcome to our home Sunneva, rosalega sætt hja þeim :). Allavega eftir að ég var búin að koma mér aðeins fyrir fór ég með strákunum longboarding sem er næstumþví eins og hjólabretti bara stærra og var það bara mjög skemmtilegt :). Þegar við vorum komin með nóg af brettunum ákváðum við að fara til baka og fara í sund. Við ákváðum líka að koma við hjá Femke sem er hollenski skiptineminn sem býr aðeins neðar í götuni og bjóða henni með okkur (við hringdum líka í stelpuna frá þýskalandi sem verður líka með mér í skóla ). Við vorum í sundi í ca 3 tíma og fórum svo heim í sturtu og svoleiðis og síðan var Elise með kvöldmat fyrir okkur öll og var það mjög gott. Eftir mat fóru strákarnir með okkur skiptinemana á sonic að fá rootbeerfloats sem er rootbeer og ís ofaná ( mér finst það ekkert sérstakt) þeir voru búnir að búast við því að okkur myndi ekki líka þetta þannig að þeir biðu eftir að fá afgangana :). Eftir það fór ég, Jamie (elsti bróðirinn) og Fem í bíó á batman myndina og þó að ég var búin að sjá hana þá ákvað ég samt að fara með þeim. í dag fór ég í moll með bræðrum mínum, vini þeirra og skoðuðum okkur aðeins um því ég og Fem ætlum að fara seinna bara 2 að versla svo að við gerðum ekki útaf við strákana. eftir að við vorum búin í mollinu þá fórum við heim og horðum á nokkra himym þætti og síðan fórum við í mat til Fem. Maturinn þar var ekkert smá góður við fengum nautakjöt með kartöflum og einhverju öðru mjög góðum mat.
ekkert meira í bili
Sunneva

Thursday, August 9, 2012

ferðablogg

Jjæja þá er maður víst lagður af stað til bandaríkjanna. Ferðin gekk misvel, ég var að ferðast með stelpu sem heitir Þóra og vorum við búnar að ákveða að hittast uppi á flugvelli klukkan 8 því að flugið okkar var klukkan 10:30. Þegar við vorum búnar að tjékka okkur inn þurfti að borga smá yfirvigt fyrir töskurnar því að þau úti leyfa okkur ekki að vera með 2 töskur. Þegar það var búið þurftum við að fara að kveðja mömmu og pabba. Þegar við komum í fríhöfnina skoðuðum við smá og fórum síðan og fengum okkur að borða niðri hjá saga class því að við vorum víst með einhverja comfort miða eða eithvað og vorum á milli saga class og venjulegu. Allavega flugið til Boston gekk bara mjög vel og var mjög fljótt að líða. Þegar við lentum í Boston þurftum við að filla eithvað út sem við vissum ekki að við þurftum að fylla út og fólkið á flugvellinum vildu ekki hjálpa okkur því að við áttum að tala við einhvern sem var að representa icelandair.  Á endanum þá kom einhver að hjálpa okkur og alllt gekk miklu betur. Þegar að við vorum búnar að sækja töskurnar okkar þurftum við að connecta þær við næsta flug og við gerðum það og fórum síðan í terminal B sem var  hinum megin á flugvellinum og tókum einhverja rútu þangað. Þegar þangað var komið vorum við búnar að gleyma hvert við áttum að fara og þurftum að spyrja til vegar, Þar var spurt okkur með hvaða flugfélagi við vorum að fara að fljúga en við mundum það ekki en föttuðum síðan að við vorum með miðann og þá reddaðist allt. Loksins eftir langa bið vorum við komnar í fríhönina í Boston og fengum okkur þar að borða á Mc Donalds og þurftum síðan að bíða þar í 2 og hálfan tíma. Þegar þessi bið var búin fórum við um borð í flugvél sem var verri heldur en iceland express flugvélarnar það var svo þröngt :(. Það flug var bara í klukkutíma því að við millilentum í fíladelfíu og þurftum að fara frá borði og bíða í klukkutíma til að fara til Houston. Þegar við  vorum að bíða þar þá hittum við skiptinema sem var að fara heim og hann öfundaði okkur ekkert smá við að vera að byjra þessa ferð og spjölluðum við við hann í smá stund þangað til að við fórum um borð í flgvélinni. Þá tók við 4 tíma flug til Houston og vorum við orðnar frekar þreyttar þá enda klukkan orðin hálf 11 á íslenskum tíma og við búnar að vera vakandi síðan klukkan 6. Í því flugi flugum við framhjá eldingarskýjum og voru eldingarnar bara við hliðina á okkur, það var mjög flott og spennandi að sjá það. Þegar að við lentum síðan loksins í Houston var sjálfboðaliði frá AFS sem að tók á móti okkur og hittum við aðra skiptinema frá spáni og suður afríku. Þegar við vorum búnar að ná í farangurinn þurftum við að bíða eftir einhverri rútu sem að tæki okkur á hótelið sem við gistum á í nótt. Á þessum klukkutíma sem við vorum að bíða eftir rútuni þá vorum við í frekar miklum svefngalsa og hlógum geðveikt mikið og voru örugglega margir að spá í hvað væri í gangi með okkur. Þegar að við komum á hótelið þá kom það í ljós að Þóra var ekki í sama herbergi og ég af því að hún þarf að fara með flugi klukkan 8 og var því vakin klukkan 4:30 en ég fer ekki fyrr en klukkan 17:00 þannig að ég fékk að sofa þangað til hálf 7. núna sit ég á hótelinu með öðrum skiptinemum sem eru að fara til Dallas og fer ekki fyrr en um 5 og þá fer ég í 5-6 tíma rútuferðalag og síðan á annað hótel og á föstudaginn fæ ég að hitta fjölskylduna mína :)
ekkert meira í bili
-Sunneva

Monday, July 30, 2012

Fyrsta bloggið

jæja þá er ég búin að búa til bloggsíðu til að þið getið fylgst með því hvað ég verð að gera og svoleiðis úti :)  fyrir þá sem vita það ekki þá er ég að fara sem skiptinemi til bandaríkjanna og mun vera þar í ár. Ég er að fara til Dallas í Texas og er komin með fjölskyldu og líst bara mjög vel á hana. Í fjölskyldunni eru ein stelpa sem er 23 og býr í Houston og kemur bara heim um hátíðar, 1 strákur sem er 21 og er í háskóla og er verður því ekki heldur heima nema í fríum, síðan eru líka tvíburar sem eru 20 og eru líka í háskóla og verða bara heima í fríunum. þannig að mest allan tíman mun ég vera eini krakkin á heimilinu sem er bara nokkuð fínt :). ég er búin að hafa samband við þau og er orðin frekar spennt fyrir því að hitta þau loksins. Elise (fóstur "mamma" mín) er búin að tala við sundþjálfarann úti og sagði mér að ég get verið að æfa sund með skólanum sem ég er mjög ánægð með.  Allavega að þá eru bara 9 dagar þangað til að ég fer út og ég er orðin mjög spennt. ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga þegar að ég kem út til að þið getið fylgst með þessu ævintýri mínu með mér.

-Sunneva