Amerísk jól :)
jæja þá er komið að því fyrsta bloggið sem 18 ára stelpa :). Afmælisdagurinn minn var alveg frábær :). Hann byrjaði á laugardagskvöldið þegar að ég fékk afmælisgjöfina mína frá Fem sem að var bíómiði á Hobbitann ( eina leiðin fyrir mig til að fá hana að fara með mér á hana ;P). En fyrir myndina fórum við heim til Izzy að baka afmælis eplabökuna mína :). Þegar að ég kom heim úr bíóinu þá voru mamma og pabbi hérna úti búin að skreyta herbergið mitt með happy birthday blöðrum og plaggötum :). Þegar að ég vaknaði þann 16. þá fékk ég afmælisgjöfina mína frá Elise og Leigh sem að var snuggy teppi (teppi með ermum og vösum) og mynd með nokkrum myndum frá ferðum mínum síðan að ég kom og svo smá nammi :). Síðan var skypað við mömmu og pabba og opnað gjafir eftir langa bið :). Etir að ég var búin að skypa mömmu og pabba og Gunnar að þá fór ég í jólaboð AFS og var það bara mjög skemmtilegt :) við fórum í broomball, sem að er alveg eins og íshokkí á svelli og allt bara ekki á skautum og í staðin fyrir kylfu þá notuðum við kúst sem að var bara mjög gaman (ég var ein af þeim fáu sem að datt ekki neitt á svellinu og er ég mjög stolt af sjálfri mér :)). Þegar að allir voru að fara heim að þá var komið með köku fyrir mig og Jessie (skiptinemi frá hollandi sem að á líka afmæli þann 16. desember) en manneskjan sem skreytti kökuna var greinilega búinn að gleyma því að ég átti líka afmæli því að kakan var mjög fallega skreytt með afs og til hamingju með afmælið Jessie á hollensku og allt en ekkert með nafninu mínu :( en ég fékk samt köku og það var sungið fyrir mig líka :). Allavega að þá var afmælisdagurinn minn bara mjög fínn :).
Skólinn fór ekki í jólafrí fyrr en að 21. des sem að var á föstudaginn síðastliðinn og var biðin alveg endalaus síðustu vikuna en loksins var ég komin í jólafrí og fór í jólaboð í Austin hjá bróðir Elise :). Konan hans er frönsk og var meira en helmingurinn af fólkinu í jólaboðinu franskt en það var ekkert mál því að við unga fólkið fundum okkur eithvað skemmtilegt að gera og fórum í klettaklifur klukkan 12 um kvöldið og var það bara mjög skemmtilegt :).
Aðfangadagur var án efa furðulegasti aðfangadagur sem að ég hef upplifað. Ég vaknaði um 10 leitið og fór til Fem að klára að pakka inn gjöfinni handa bræðrum mínum. Eftir það fór ég með Jamie bróður mínum og Martin (danski skiptineminn sem er hjá okkur um jólin því fjölskyldan hans fór til Ítalíu um jólin) í ræktina, sem að var reyndar frekar mikill bömmer þar sem að ég gat ekki gert neit því að ræktin lokaði snemma og Martin og Jamie voru að klára settið sitt og svo ætlði ég að gera því að ég er aðeins lágvaxnari en þeir og við nenntum ekki að vera að skipta um stillingarnar alltaf, en það var allt í lagi því að ég gerði bara mínar egin æfingar þegar að ég kom heim :). Allavega eftir að ég kom heim þá skypaði ég mömmu, Pabba, Agötu, Aron og ömmu þar sem að þau voru búin að opna allar gjafirnar og búin að hafa svaka kósí kvöld án mín. Eftir að ég var búin að skypa þau þá skypaði ég Gunnar og svo fór ég að gera mig klára fyrir "christmas eve dinner" hjá Mark og Mary (fjölskylda Fem skiptinemans frá Hollandi). Fyrsta skipti síðan að ég man eftir mér þar sem að ég er ekki í mínum fínustu fötum á aðfangadagskvöld, en ég tók þá ákvörðun að vera smá í fínna lagi og fór í aðeins fínni föt en vanalega. Allavega í forrétt hjá þeim fengum við kjötsúpu, já KJÖTSÚPU sem að við fáum alltaf á sprengidag nema þessi var ekki með saltkjöti. Eftir mat skiptumst við á gjöfum við þeirra fjölskyldu og fékk ég að opna 1 gjöf frá Mark og Mary, þau gáfu mér mjög þægilegar náttbuxur :). Eftir gjafaskipti fórum við heim því að Mark og Mary þurftu að fara í krikju og fjölskyldan mín fer ekki í kirkju (sem betur fer þar sem að ég hata að fara í kirkju :/. ) Þegar að ég kom heim horfði ég á magic Mike með Martin og fór svo að sofa. Í nótt var svakalegt þrumuveður og ótrúlega mikil rigning og voru þrumurnar alltaf að vekja mig þannig að ég svaf ekki neitt svakalega vel í nótt en svaf samt alveg þangað til 11 þannig að ég fékk nógan svefn :). Þegar að ég vaknaði fór ég fram að athuga hverjir væru vakandi og komst að því að strákarnr voru enþá sofandi en þeir voru fljótt vaktir til að opna gjafir. Ég fékk mikið af gjöfum og vil ég þakka öllum fyrir gjafirnar þeirra þær eru allar æðislegar :). Eftir að við vorum búin að opna allar gjafirnar þá voru strákarnir (21, og 20 ára) frekar hyper og komst ég að því að jóladagsmorgun breytir þeim víst í 5 ára krakka :). Um hádegisbil þá tók ég eftir því að það var snjókoma úti :) WOHOOO ég var svo ánægð þar sem að þegar að Elise sagði mér frá veðurspánni og ég var að segja fólki frá því þá sögðu allir að ég ætti ekkert að vera að búast við því að fá jólasnjó og að ég myndi örugglega ekki fá neinn snjó en ég fékk jólasnjóinn minn :). Það snjóaði til 5 og er snjórinn enþá úti en er það víst mjög sjaldgæft í Dallas. Þetta var fyrsti jólasnjór fjölskyldunnar og strákarnir hlupu allir út og tóku upp hvernig snókoman var og létu eins og 5 ára krakkar aftur :). Restin af deginum var bara mjög svipuð jóladeginum heima bara setið og slakað á, horft á myndir og eithvað.
Allavega þetta var Texas jóla upplifunin mín :)
Jólakveðja
-Sunneva
No comments:
Post a Comment