Saturday, January 12, 2013

dvölin hálfnuð

Tíminn líður ekkert smá hratt hérna hjá mér í Texas. 5 mánuðir liðnir og dvölin mín hérna hálfnuð :O, ég er bara ekki að trúa því að ég sé búin að vera hérna í heila 5 mánuði mér fints enþá eins og ég hafi farið um borð í flugvélina á leið hingað í gær haha. Áður en að ég veit að því verð ég í flugvélinni á leiðinni heim :O, tíminn líður hratt þegar að maður er að skemmta sér og er það einmitt það sem e´g er að gera hérna :). 


Áramótin hérna voru mjög spes............engin kalkúnn og engin ræða og verst af öllu............. engir flugeldar :(. Ég er ekki að segja að áramótin hérna hafi verið slæm alls ekki, þau voru alveg æðisleg. fyrripart gamlársdagsins sat ég heima að gera ekki neitt með strákunum og Fem og skypaði smá við fólkið heima í gamlárspartýinu, seinnipartinn fór ég í AFS gamlárspartý sjálf :). Partýið var hjá Lynn sem að er AFS coordinator (stjórnarfulltrúi eða eithvað svoleiðis hún er yfirmanneskjan hjá skiptinemunum í dallas ) og á hún ekkert smá flott hús. Húsið hennar er á 2 hæðum og er einhverstaðar lengst út í buska. Í partýinu var ca helmingur skiptinemanna og skemmtum við okkur konunglega.  við horfðum á niðurtalninguna á í miðnætti í sjónvarpinu og voru pínkulitlir flugeldar en það var í mestalagi ein terta niðri í bæ sem að við fengum bara að sjá í sjónvarpinu :/, allavega hjá skiptinemunum í dallas er það víst einhver siður að þau hoppi í sundlaugina eftir miðnætti á gamlárs og var ca helmingurinn af skiptinemunum sem að gerðu það í ár því að það var ca -3°C úti og sundlaugin ekki nema 15-17°C og ekki vildi neinn vera veikur í síðustu vikunni í jólafríinu (ég hefði hoppað í laugina ef að ég hefði tekið með mér auka föt en ég tók ekki með mér auka föt og ég var í fínum kjól). Eftir miðnætti fundum við ipod hátalara og sátum öll í stofuni og vorum að syngja og dansa við fullt af lögum og var það ekkert smá gaman :) ég og Fem vorum fyrstar að fara upp í herbergi að sofa og það var klukkan hálf 5 og hinir fóru að sofa klukkan hálf 6 og vorum við vakin um 10 leitið, ekki mikinn svefn en samt þess virði :).


Skólinn er byrjaður aftur eftir frekar stutt jólafrí eða bara 2 vikur :(, og næsta vika er finals vika sem að mér finst frekar skrítin tímasetning, mér finst það meika meira sens að hafa lokaprófin í desember í staðin fyrir í janúar en allavega lokaprófsvikan virkar þannig að ég fer í venjulegan skóladag á mánudaginn og svo á þriðjudaginn fer ég bara í próf og er það byggt þannig up að fyrsta daginn fer ég í 2 próf semsagt 1. og 2. tíma og á miðvikudaginn fer ég í prófin úr 3 og 4 tíma og svo framvegis. High school er í rauninni bara grunnskóli 2 árum lengur. En allavega að eftir næstu viku fæ ég 4 daga helgi og svo byrjar vorönnin :). 


Það er allt að fara á flug í sundinu þar sem að district er 1. febrúar, District er stærsta sundmótið þar sem að allir í liðinu fara á og allir skólar í skólasvæðinu mínu keppa á. Ef að þú nærð 1 af top 6 tímunum í einhverjum af greinunum þínum, bæði einstaklings og boðsund, þá færð þú að fara á regionals, regionals er stærra en district því að þar er allir sem eru í mínu region (ég veit ekki alveg hver munurinn er á district og regionals en ég veit að þú þarft að ná tímanum til að komast á regionals en allir fá að keppa á district). Ég hef mjög góða möguleika á því að komast á regionals þar sem að ég er með fastan lið í fjósunds boðsundssveitinni sem flugsunds manneskjan og erum við mjög góðar :), ég var líka að skoða keppendalistann frá regionals í fyrra og ég get kanski fengið brons og mögulega silfur í 100 yard flugsundi, þar sem að besti tíminn var 1.05, næstbesti tíminn var síðan 1.10 og ég á 1.08 þannig að Elena, stelpan sem að er betri en ég í flugsundi myndi ná gullinu þar sem að tíminn hennar er 1.04, svo stelpan sem fékk 1.05 og svo ég með 1.08 (markmiðið mitt er samt að bæta tímann niður í allavega 1.06 :)).  Þar sem að sundlaugin sem að við æfum í var lokuð í jólafrínu, og ekki fóru allir að synda í jólafríinu þá tók Bates (þjálfarinn minn) þá ákvörðun að við fengum ekki neitt meira frí (við erum vön að fá frí á fimmtudögum því þá þarf hún að fara á fundi á morgnanna) við erum meira að segja með æfingar í finals week, nema að æfingarnar í þeirri viku verða um 2 leitið eftir prófin í staðin fyrir að vera um morguninn, og á frídeginum okkar snemma um morguninn, en það er allt í lagi því að æfingin skapar meistarann :)


ekki meira í bili       

              -Sunneva