jæja það er víst komið að öðru bloggi...........
síðustu vikur hafa verið frekar uppteknar hjá mér........
fyrir 2 vikum voru lokaprófin og voru þau miklu auðveldari heldur en lokaprófin á íslandi ég náði öllum prófunum og lægsta einkuninn mín var 6,8 og var það í ensku :(. eins og ég sagði í síðasta bloggi þá er lokaprófs vikan þannig að á mánudeginum förum við í venjulegan skóladag og á þriðjudagsmorgun þá ferðu í fysta tímann þinn og hefur 2 tíma til að klára prófið fyrir þann tíma og skiptir svo um fag og hefur 2 tíma til að klára það próf og færð síðan að fara heim um hádegi og læra fyrir næsta próf (nema hjá mér var sundæfing næst á dagskrá). fyrsti tíminn minn er sund þannig að ég var í 2 tíma að gera ekki neitt sem að var í rauninni alveg fínt þar sem að ég var með krökkunum úr sundliðinu :). annar tíminn minn var enska og var prófið frekar erfitt, en samt ekki því að þetta var bara krossapróf og alltaf hægt að nota útilokunaraðferðina :). á miðvikudaginn var algebra og tölvuvísindi (computerscience), og gekk mér frekar vel í báðum, í algebruprófinu voru hlutir sem var ekki búið að kenna okkur og var kennarinn minn frekar pirruð á því og í öllu districtinu þá var hæðsta einkunin 8,3 og ég fékk 8,0 þannig að ég er mjög sátt með þá einkun :). á fimmtudaginn var amerísk saga og líffræði, saga var í rauninni eina fagið þar sem að ég lærði almennilega fyrir því að ég get bara ekki fengið sögu til að festast í hausnum á mér :/ en samt fékk ég 7 á lokaprófinu sem að ég tel nú bara vera frekar gott þar sem að ég er í AP sem er undirbúningur fyrir háskóla og ég hef aldrei tekið ameríska sögu áður. Á föstudeginum var það spænska og dans, spænska var mjög létt því að þetta var krossaspurningapróf eins og allt annað :P bandaríkjamenn eru víst svakalega mikið fyrir krossapróf þar sem að flest próf eru krossapróf. Sum prófin í grunnskóla voru erfiðari heldur en þessi lokapróf. En fyrsta önnin mín er lokið og er ég mjög sátt með útkomuna :).
Helgina eftir prófin var Martin Luther King day þannig að það var enginn skóli og starfsdagur á þriðjudeginum þannig að ég fékk 4 daga helgi sem að var alveg æðislegt :). Á þriðjudeginum fór ég að versla kjól fyrir sadie's ballið með Fem og Izzy (Sadie's er ball þar sem að stelpurnar spurja strákana um að koma með sér á ball).
Helgina 25.-27. janúar var mid year orientation sem að var ekkert smá mikið fjör. Við vorum einvherstaðar lengst út í buska á einhverju kúreka hóteli og byrjuðum daginn á námskeiðum eins og vanalega en eftir kvöldmat þegar að námskeiðin voru búin þá skemmtum við okkur konungslega. Við sungum í karaókí, dönsuðum skemmtilega dansa, kepptum í húla húpp keppni og er ég hula hoop meistari 2013 :) . Við settum saman bál og grilluðum smores sem að er ótrúlega gott en mér finst bara venjulegir grillaðir sykurpúðar miklu betri en s'mores. Við fórum að sofa um miðnætti því að við þurftum að fara í morgunmat um hálf 9. ég ætlaði að vakna með Fem um korter yfir 7 til að fara í sturtu áður en að allar stelpurnar vöknuðu og sturturnar uppteknar. Ég stillti vekjaraklukkuna á símanum til kroter yfir 7 og fór svo að sofa en þegar að allir voru farnir að sofa og klukkan var í kringum korter yfir 1 og ég nýsofnuð þá ákvað síminn minn að breyta tímanum í korter yfir 7 og hringja vekjaraklukkuni, ég hélt náttúrulega að klukkan væri korter yfir 7 þannig að ég vakti fem og sagði henni að við ættum að vakna og henni fanst það eithvað sktítið og sagðist ekki einu sinni vera búin að sofna þannig að það gæti ekki verið að klukkan væri orðin korter yfir 7 þannig að ég leit á aðra klukku og varð mjög hissa en líka mjög ánægð með að geta farið aftur að sofa :)

District sundmótið var á föstudaginn síðastliðinn. Sundliðið fór í morgunmat hjá coach Bates (þjálfaranum mínum) og sögðu allir að allir ættu að vera "dressed up" eða í fínum fötum afþví að þetta er síðasta mót tímabilsins, ég gerði það náttútulega og fékk Fem (varastílistinn minn þar sem ég hef ekki aron með mér hérna :P) til að hjálpa mér að finna outfit. Við fundum sætt outfit sem að ég fékk mjög mikið af hrósum fyrir, en þegar að við komum í morgunmatinn þá kom það í ljós að þetta er hrekkur sem að eldri krakkarnir gera á busana og nýja fólkið því að enginn var í fínum fötum það voru allir í joggingsbuxum og hettupeysum nema busarnir og ég :(, það var ekki gaman :(, en ég harkaði af mér og ákvað að skipta ekki um föt og var í sparifötum allan daginn. Við áttum að fara í fyrstu 6 tímana og eftir 6. tíma fórum við í kennslustofu Bates og fengum pasta að borða og fórum svo upp í sundlaugina þar sem að við vorum að hjálpa til við að gera allt klárt fyrir mótið þar sem að mótið var haldið í Loos sundlauginni sem að er okkar sundlaug þannig að við þurftum að sjá um allt þetta dæmi. Upphitun byrjaði klukkan 5 og var það verra en á stærstu mótunum heima því að það var ekki einusinni pláss fyrir öll liðin til að hita upp og var það mjög óþægilegt og alltof þröngt, en við náðum samt að hita upp :). Ókey þá er komið að sundinu, fyrsta greinin mín var 200 yards fjórsunds boðsund þar sem að ég synti flugsund, við lentum í 3. sæti þar og komumst á regionals og bættum tímann okkar um sekondu :). Næsta greinin mín var 100 yard flugsund, ég vissi að ég var ekki að fara að ná gullinu þar því að ég var að keppa við Elenu sem að er ein af bestu sundmönnunum í liðinu og aðalsundið hennar er líka flugsund og er besti tíminn hennar 1.04 og minn 1.08 en það er allt í lagi því að markmiðið mitt var að ná 3. sæti, ég náði því reyndar ekki en 4. sætið er nógu nálægt, sérstaklega þegar að það var ekki nema hálf sekonda milli mín og 3. sætisins :). Og svo að lokum var það 500 yard skriðsundið, ég bætti tímann minn þar um 7 sekondur og fór frá 6.27 niður á 6.20 og lenti í 6. sæti og réttsvo komst áfram á regionals (efstu 6 sætin fá að fara á regionals ). Allavega að þá var ég mjög sátt með þennan árangur og fæ ég að sleppa skóla til að fara á sundmót þar sem að mótið er þann 8. febrúar og er um morguninn :) eins æðislegt það er að sleppa skóla að þá er samt alltaf slæmt að missa heilan dag og ég hata að gera make-up work þannig að ég er mjög heppin með að þessi dagur er early release day sem að þýðir að skóladagurinn er bara hálfur og ég missi ekki alltof mikið úr skóla :).
Ekki meira í bili
-Sunneva