Friday, March 22, 2013

Spring break :)

Góðan og blessaðan daginn kæru ættingjar og vinir................mér finst eins og að það hafi bara verið í gær sem að ég var að kveðja ykkur öll og leggja af stað í ævintýra ferð til bandaríkjanna í ár.......en það er víst aðeins lengra því að ég er búin að vera hérna í 7 og hálfan mánuð.....alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt þegar að þú hefur gaman. Allavega að þá er hérna smá stutt/langt blogg (er ekki viss hvort það verði stutt eða langt :P)


Spring break


þann 8-18 mars upplifði ég spring break :). Spring break er ekki alveg eins og bíómyndirnar vilja að við höldum haha eða allavega að þá var upplifunin mín ekki sú sama. Ég fór sem sagt til Destin í Flórida með mömmu og Fem. Við löggðum af stað klukkan 7 á föstudagsmorgni (jess fékk að sleppa föstudeginum) í 14 tíma bílferð til Flórida. Bílferðin var svakalega skemmtileg :) og tókum við fullt af skemmtilegum myndum. Þar sem að hvorki ég né fem meigum keyra hérna úti að þá þurfti Elise að keyra allan tímann og er það frekar erfitt þannig að Fem og ég gerðum samning um að manneskjan sem að sat frammí þurfti að halda sér vakandi með Elise og tala við hana svo að hún myndi örugglega ekki sofna. Þessi regla var óvart brotin nokkrum sinnum þar sem að á tímabili var mjög erfitt að halda sér vakandi. Við gistum í mjög fallegri íbúð sem að var mjög stutt frá ströndini og það fyrsta sem að við gerðum þegar að við komum þangað var auðvitað að fara í göngutúr til að finna hvar við gætum farið á ströndina. Á degi 2 þá fórum við í göngutúr á ströndinni um morguninn og var það mjög fallegt, aðeins hvassara en við vorum að vona en ströndin var ekkert smá falleg. Eftir morgungöngutúrinn var auðvitað klætt sig í bikinýin og borið á sig sólavörn og gert sig klára til að fara að tana á ströndini. Við ákváðum að sjá hvort að það væri kanski aðeins minna hvasst á panama beach sem að var aðeins í klukkutíma fjarlægð. Ég og fem vorum ekkert smá spenntar og klæddar í strandarföt enda í kringum 20°C úti. En auðvitað þar sem að óheppnin ákveður að elta mig hvert sem að ég fer að þá um leið og við komum á ströndina að þá fór sólin í burtu og skildi skýin og vindinn eftir þannig að það varð ískalt á ströndinni. Við entumst í ca hálftíma á ströndinni og urðum svo svangar að við ákváðum að fara eithvert að fá okkur hádegismat/kaffitíma. Þegar að við komum aftur heim upp í íbúðina þá chilluðum við þar í dágóðan tíma  þangað til að við ákváðum að fá okkur að borða kvöldmat. Við ákváðum að vera ofur amerísk og pöntuðum pizzu og leigðum bíómyndir og horfðum á what to expect when you're expecting og borðuðum pizzu. dagur 3 var sennilega besti og uppáhalds dagurinn minn í flórida. Þegar að við vöknuðum ákváðum ég og Fem að við ætluðum að fara út að hlaupa á ströndinni, við hlupum að sttröndinni og aðeins meðfram ströndinni, settumst síðan niður á ströndinni í ca hálftíma og hlupum síðan til baka. Þar sem að ég var snillingur og bar ekki á mig sólarvörn um morguninn áður en að við fórum út að hlaupa þá brann ég svolítið á maganum og síðunni en ég passaði mig svakalega vel með allt annað þannig að ég brann voðalega lítið. Eftir hlaupið að þá var skellt sér í bikiný, makað á sig sólarvörn (30 og 50 þar sem að ég fann fyrir að ég væri farin að brenna) og skellt sér í sólbað við sundlaugina (sundlaugin var í kringum 15°C þannig að ekki var hægt að fá sér sundsprett :( ) og vorum við úti í sólbaði í ca 2 tíma að lesa bækur og hlusta á tónlist. Eftir að við vorum komnar með nóg af því að sitja við sundlauginna þá fórum við í annan göngutúr meðfram ströndinni og var það frábær ferð og skemmtum við okkur frábærlega :). um kvöldið ákváðum við að fara á veitingarstað sem að eigandi íbúðarinnar mælti með þótt að hann væri aðeins í dýrara lagi en það var í lagi að dekra við sig einu sinni  í vorfríinu :). Þessi veitingarstaður var svipaður og lava í bláa lóninu :). kvöldinu var síðan eytt í að horfa á aðra mynd :). 4. dagurinn var ekki eins útivistasamur þar sem að við höfðum ekki mikinn tíma til þess að vera úti. við fórum í klukkutíma göngutúr meðfram ströndinni og fórum síðan heim. restin af deginum var rigning þannig að við leigðum meiri myndir og horfðum á þær. um kvöldið borðuðum við á einhverjum veitingastað sem að einhvað fólk sem að við kynntumst fyrr um helgina átti. 5 dagurinn var síðan bara bílferð á leiðinni heim.
Restin af spring break var bara svaka kósí, í kringum 20-28°C á hverjum degi þannig að auðvitað var deginum eytt í sólbaði :P (með 50 vörn takkfyrirgóðandaginn en náði samt að tana/roðna).

Eftir spring break þá var loksins komið að því sem að ég var búin að bíða eftir síðan í byrjun ársins í skólanum í líffræði og ein af stærstu ástæðunum fyrir því að ég valdi lífffræði...........við byrjum á því að kryfja grís. Fyrsta daginn þá fengum við grísinn en gerðum ekki neitt, bara að mæla hvað hann var stór og skoða augun og eithvað (þessi grís er fósturgrís þannig að hann hefur aldrei verið á lífi/aldrei verið fæddur). á degi 2 þá áttum við að byrja á því að taka húðina af honum en þar sem að óheppnin elltir mig alltaf að þá sprungu einhverjar pípur í vaskinum og stofan var á floti þegar að við áttum að vera í tíma (bara tíminn minn allir hinir tímarnir var allt í lagi), þannig að tíminn minn var einum degi eftir á. Allaveg á degi 3 þá byrjuðum við að taka húðina af og var það mjög áhugavert þar sem að við þurfum að passa að við skerum ekki of dúpt og tökum vöðvan með og eithvað svoleiðis, og svo í dag kláraði ég næstum því að taka skinnið af en þarf að bíða þangað til að á mánudaginn til að klára. Flest allar stelpurnar í tímanum eru svakalegar pempíur og geta varla snert neitt án þess að sótthreinsa það eftir á og kúgast við lyktina sem að er í stofunni því að grísirnir þurfa að vera geymdir í femaldrahæt (veit ekki hvernig það er skrifað en það er einhver vökvi sem kemur í veg fyrir að grísin byrji að rotna, mjög sterk lykt en hún er ekki það vond bara mjög sterk plastlykt).
næstu 6 vikurnar í líffræði þá mun ég vera að kryfja þennan grís, skoða vöðvana, hjartað, lungun og margt fleira spennandi hluti.

þetta er nóg í bili :)
nokkran myndir :)
skemmtileg bílferð :)
                                                            
Louisiana state merkið :)
 
Mississippi skiltið :) og Mississippi áin í bakgrunni :)
 
Florida :) dagur 1
 
Byrjum að tana :)
 
æðislegi dagurinn á ströndinni :)
 
Fallega ströndin í Destin :)

-Sunneva

Friday, March 1, 2013

Regionals, superbowl, og valentínusardagurinn

Jæja þá er kominn sá tími aftur þar sem að ég þarf að blogga svo að fólkið á klakanum geti fylgst með ferðum mínum hérna úti :) margt sem hefur gerst síðan ég bloggaði síðast.....


Regionals

Já ég saði ykkur frá því í síðasta bloggi að ég komst inná næst stærsta sundmót tímabilsins (regionals) og var það 8-9. febrúar. Ég fékk að sleppa skólanum á föstudeginum þar sem að mótið  var á skólatíma og var ég mjög ánægð með það:). Ég þurfti að vera mætt uppí skóla klukkan hálf 7 að morgni til því að við þurftum að fara upp í sundlaug í sendiferðabíl (verðum að fara öll saman þar sem að þjálfarinn ber ábyrgð á okkur á mótinu). Þegar komið var í Rockwall (sundhöllin) þá var ég mjög ánægð þar sem að regionals er sett upp eins og íslensku sundmótin sem að ég var vön áður en að ég kom hingað :). Það var þessi stóri skjár með nöfnunum hjá keppendunum sem voru að synda og var nafn hvers og eins lesið upp áður ein þeir syntu. Það eina sem að vantaði uppá til að þetta yrði eins og venjulegt sundmót var keppendaherbergið. Allavega að þá gekk mér bara mjög vel á þessu móti á fyrra deginum. Ég byrjaði í fyrstu greininni minni sem að var boðsund.....ég syndi 50 flug í fjórsunds boðsundinu....við bættum ekki tímann okkar en ég bætti persónulega tímann minn ír 32 sekondum niður í 30 sek og var ég mjög sátt með það. Eftir boðsundið hafði ég dágóðan tíma til að slaka á en samt ekki alltof langan tíma.....næsta grein var 100 flugsund........ég var ákveðin í því að ég ætlaði að bæta tímann minn allavega eithvað og hugsaði ekki um neitt annað en að komast undir 1.08 minotur.......og hepnaðist það vel þar sem að ég fór á 1.07 :). Eftir flugsundið hafði ég bara eithvað á milli 5-10 mínotur þangað til að ég þurfti að keppa aftur í 500 skriðsundi.....það gekk ekki alveg jafn vel......ég gat synt fyrstu 100 yards og var svo dauð.....alltof stutt á milli greinana og fór ég á 7 sekondum verri tíma en að ég átti (átti 6:20 fór á 6.27). Árangur regionals : komst í úrslit í 200 yard fjórsunds boðsundi (13. sæti) og 100 flugsundi(12. sæti) og bætti tímann minn í báðum greinum :). Á laugardeginum þá voru úrslitin og gekk það bara ágætlega....ég bætti mig í hvorugum greinunum.......en ég er mjög sátt með árangurinn minn á þessu móti og með árangurinn minn yfir allt tímabilið :) eftir úrslitin á laugardeginum þá fórum við öll sem komumst í úrslitin út að borða til að fagna loka á góðu tímabili og var það alveg frábært, mér leið eins og ég væri stödd í pottinum með gamla upprunalegu sunddeildinni að spjalla eftir æfingu og var það algert æði :)..........núna er ég búin að vera í fríi í 3 vikur......æfingar byrja aftur 21. mars og hlakka ég mjög mikið til :).


Superbowl

Þá ég ég búin að upplifa fyrstu og örugglega einu superbowl keppni á æfi minni og var það bara mjög skemmtileg upplifun. Ég Elise og Leigh (mamma og pabbi hérna úti) fórum til vinafólks þeirra í hamborgara (ef það má kalla það hamborgara ætti frekar að kallast risa kjötfjall). Ég veit ekki enþá  um hvað amerískur fótbolti gengur eða hvernig reglurnar virka þannig að meirihluta leikjarins sat ég bara og glápti á sjónvarpið án þess að fatta neitt. Aðal gamanið fyrir mig voru auglýsingarnar........fólk var víst með einhverskonar veðmál um hver væri með bestu auglýsingarnar og eithvað svoleiðis og fannst mér mjög gaman að dæma hversu góðar þær voru. Hálfleiks sýningin var mjög flott .....sérstaklega sviðið :P. Eftir hálfleik þá byrjaði leikurinn aftur eins og á að gerast en þegar að ca 5 min voru búnar af 3 hluta að þá fór rafmagnið af helmingi vallarins og helmingur af útsendingarfólkinu og öllu því datt út......auðvitað gerist eithvað svona þegar að ég er að horfa á leik....ég smita greinilega óheppnina mína frá mér haha.....allavega að þá þurfti að taka hlé á leiknum þangað til að rafmagnið var komið aftur á og tók það í kringum klukkutíma. Þegar að rafmagnið var komið aftur á þá fór allt í gang aftur og allt fór vel á endanum......það er að segja fyrir liðið sem vann þar sem að 49ers og ravens voru að keppa og 49ers hafa ekki tapað superbowl leik sem að þeir hafa keppt í en í ár að þá unnu ravens. Ekki gott fyrir 49ers.


Valentínusardagurinn

Já valentínusardagurinn............fyrir íslendinga og flest alla í heiminum held ég er valentínusardagurinn bara ósköp venjulegur dagur með þeirri undantekningu að þú dekrar kanski smá við kærastann/kærustuna/eiginmanninn/konuna. Nei ekki fyrir bandaríkjamenn...........valentínusardagurinn er dagur þar sem að bandaríkjamenn verða alveg kol kreisí.........í skólanum var fólk að dreyfa nammi, önnur hver stelpa var labbandi um skólagangana með bangsa sem að er stærri en hún, og þetta gera ekki bara pör heldur allir  fólk sem að er ekki í sambandi gefur bestu vinum sínum og eithvað svoleiðis....það sem að við sjáum alltaf í bíómyndunum á valentínusardaginn og við höldum að það séu ýkjur er alveg satt nema að það er bíómyndir x2. En annars var valentínusardagurinn bara venjulegur fimmtudagur fyrir mig :).