Friday, March 1, 2013

Regionals, superbowl, og valentínusardagurinn

Jæja þá er kominn sá tími aftur þar sem að ég þarf að blogga svo að fólkið á klakanum geti fylgst með ferðum mínum hérna úti :) margt sem hefur gerst síðan ég bloggaði síðast.....


Regionals

Já ég saði ykkur frá því í síðasta bloggi að ég komst inná næst stærsta sundmót tímabilsins (regionals) og var það 8-9. febrúar. Ég fékk að sleppa skólanum á föstudeginum þar sem að mótið  var á skólatíma og var ég mjög ánægð með það:). Ég þurfti að vera mætt uppí skóla klukkan hálf 7 að morgni til því að við þurftum að fara upp í sundlaug í sendiferðabíl (verðum að fara öll saman þar sem að þjálfarinn ber ábyrgð á okkur á mótinu). Þegar komið var í Rockwall (sundhöllin) þá var ég mjög ánægð þar sem að regionals er sett upp eins og íslensku sundmótin sem að ég var vön áður en að ég kom hingað :). Það var þessi stóri skjár með nöfnunum hjá keppendunum sem voru að synda og var nafn hvers og eins lesið upp áður ein þeir syntu. Það eina sem að vantaði uppá til að þetta yrði eins og venjulegt sundmót var keppendaherbergið. Allavega að þá gekk mér bara mjög vel á þessu móti á fyrra deginum. Ég byrjaði í fyrstu greininni minni sem að var boðsund.....ég syndi 50 flug í fjórsunds boðsundinu....við bættum ekki tímann okkar en ég bætti persónulega tímann minn ír 32 sekondum niður í 30 sek og var ég mjög sátt með það. Eftir boðsundið hafði ég dágóðan tíma til að slaka á en samt ekki alltof langan tíma.....næsta grein var 100 flugsund........ég var ákveðin í því að ég ætlaði að bæta tímann minn allavega eithvað og hugsaði ekki um neitt annað en að komast undir 1.08 minotur.......og hepnaðist það vel þar sem að ég fór á 1.07 :). Eftir flugsundið hafði ég bara eithvað á milli 5-10 mínotur þangað til að ég þurfti að keppa aftur í 500 skriðsundi.....það gekk ekki alveg jafn vel......ég gat synt fyrstu 100 yards og var svo dauð.....alltof stutt á milli greinana og fór ég á 7 sekondum verri tíma en að ég átti (átti 6:20 fór á 6.27). Árangur regionals : komst í úrslit í 200 yard fjórsunds boðsundi (13. sæti) og 100 flugsundi(12. sæti) og bætti tímann minn í báðum greinum :). Á laugardeginum þá voru úrslitin og gekk það bara ágætlega....ég bætti mig í hvorugum greinunum.......en ég er mjög sátt með árangurinn minn á þessu móti og með árangurinn minn yfir allt tímabilið :) eftir úrslitin á laugardeginum þá fórum við öll sem komumst í úrslitin út að borða til að fagna loka á góðu tímabili og var það alveg frábært, mér leið eins og ég væri stödd í pottinum með gamla upprunalegu sunddeildinni að spjalla eftir æfingu og var það algert æði :)..........núna er ég búin að vera í fríi í 3 vikur......æfingar byrja aftur 21. mars og hlakka ég mjög mikið til :).


Superbowl

Þá ég ég búin að upplifa fyrstu og örugglega einu superbowl keppni á æfi minni og var það bara mjög skemmtileg upplifun. Ég Elise og Leigh (mamma og pabbi hérna úti) fórum til vinafólks þeirra í hamborgara (ef það má kalla það hamborgara ætti frekar að kallast risa kjötfjall). Ég veit ekki enþá  um hvað amerískur fótbolti gengur eða hvernig reglurnar virka þannig að meirihluta leikjarins sat ég bara og glápti á sjónvarpið án þess að fatta neitt. Aðal gamanið fyrir mig voru auglýsingarnar........fólk var víst með einhverskonar veðmál um hver væri með bestu auglýsingarnar og eithvað svoleiðis og fannst mér mjög gaman að dæma hversu góðar þær voru. Hálfleiks sýningin var mjög flott .....sérstaklega sviðið :P. Eftir hálfleik þá byrjaði leikurinn aftur eins og á að gerast en þegar að ca 5 min voru búnar af 3 hluta að þá fór rafmagnið af helmingi vallarins og helmingur af útsendingarfólkinu og öllu því datt út......auðvitað gerist eithvað svona þegar að ég er að horfa á leik....ég smita greinilega óheppnina mína frá mér haha.....allavega að þá þurfti að taka hlé á leiknum þangað til að rafmagnið var komið aftur á og tók það í kringum klukkutíma. Þegar að rafmagnið var komið aftur á þá fór allt í gang aftur og allt fór vel á endanum......það er að segja fyrir liðið sem vann þar sem að 49ers og ravens voru að keppa og 49ers hafa ekki tapað superbowl leik sem að þeir hafa keppt í en í ár að þá unnu ravens. Ekki gott fyrir 49ers.


Valentínusardagurinn

Já valentínusardagurinn............fyrir íslendinga og flest alla í heiminum held ég er valentínusardagurinn bara ósköp venjulegur dagur með þeirri undantekningu að þú dekrar kanski smá við kærastann/kærustuna/eiginmanninn/konuna. Nei ekki fyrir bandaríkjamenn...........valentínusardagurinn er dagur þar sem að bandaríkjamenn verða alveg kol kreisí.........í skólanum var fólk að dreyfa nammi, önnur hver stelpa var labbandi um skólagangana með bangsa sem að er stærri en hún, og þetta gera ekki bara pör heldur allir  fólk sem að er ekki í sambandi gefur bestu vinum sínum og eithvað svoleiðis....það sem að við sjáum alltaf í bíómyndunum á valentínusardaginn og við höldum að það séu ýkjur er alveg satt nema að það er bíómyndir x2. En annars var valentínusardagurinn bara venjulegur fimmtudagur fyrir mig :).



No comments:

Post a Comment