Wednesday, June 12, 2013

síðasti skóladagur, kveðjustundir og san Francisco

jæja þá er bara komið að því...aðeins 2 vikur í að ég kem heim á klakann :) Það er svolítið langt síðan að ég bloggaði síðast og ég man ekki nákvæmlega alllt sem að ég er búin að vera að gera síðan þá en ég ætla að gera mitt besta að rifja upp fyrir ykkur :)


Síðasti skóladagurinn


Já síðasti dagurinn í W.T.White high school var frekar erfiður, þótt að síðasti skóladagurinn var í rauninni ekki kveðjustundin þar sem að ég átti eftir að fara í próf í flest öllum tímunum þannig að ég átti eftir að hitta flest alla kennarana aftur áður en að skólaárið mitt var búið :). Ég ákvað samt að vera svaka næs og gaf uppáhalds kennurunum mínum litlar gjafir og svo gaf ég restinni þakkarbréf.  Allavega að fyrsti prófdagurinn var fyrsta kveðjustund og ein af þeim erfiðustu hingað til, ég þurfti að kveðja sundliðið sem var búið að hleypa mér inn í þessa litlu fjölskyldu :( eftir að nokkur tár voru fallin þá jafnaði ég mig og gat kvatt þau almennilega og fékk meira að segja mynd af mér með þeim :). það var aðeins auðveldara að kveðja alla hina kennarana en samt ekki auðvelt. Sögukennarinn minn (ein af uppáhalds kennurunum mínum) var með helminginn af tímanum sem að við fengum tileinkaðan mér ( saga er AP tími (advanced placement) sem að er college tími og þau tóku lokaprófið miklu fyrr þannig að í staðin fyrir próf þá þurftum við að vera með frían tíma með kennaranum í 2 klukkutíma), hún lét alla kvitta á blað fyrir mig og skrifa kveðju til mín, hún tók nokkrar myndir með mér og svo af öllum hópnum og bað mig síðan um að skrifa niður heimilisfangið mitt svo að hún gæti sent mér bréf eða eithvað svoleiðis :P.  allavega að þá var loksins allar kveðjurnar í skólanum búnar og hið langþráða sumarfrí loksins komið :P


San Francisco


Ég og Fem ákváðum að við vildum fara í eina ferð í viðbót áður en að við færum heim og þar sem að Högni býr í San Francisco þá ákváðum við að tjékka á því hvort að við gætum ekki farið til San Francisco og gist hjá þeim og auðvitað var það ekkert mál. Við flugum til San Francisco á mánudegi og komum heim á laugardeginum og var þessi ferð ekkert smá mikið fjör. Ég og Fem vorum vaktar á hverjum morgni í kringum 7 leitið því að Alexandra og Ísabella vöknuðu og eru ekki neitt svakalega góðar í því að hafa hljótt en það er allt í lagi þar sem að það gaf okkur meiri tíma til að gera aðra hluti í borginni. Við eyddum fyrri hluta dags með Högna og stelpunum og seinnipartinn vorum við bara ég og Fem.  Fyrsta daginn okkar að þá fórum við niður í bæ og keyptum rútumiða og miða fyrir Alcatraz daginn eftir. Um 2 leitið hittum við vin hennar Fem sem að var að fara heim til Hollands um morgunin. Við eyddum deginum með honum og einhverjum vini hans og var það ekkert smá skemmtilegt og gagnlegt þar sem að við löbbuðum út um allt og náðum að ná áttum. Á miðvikudeginum þá kíktum við í academy of science með stelpunum og fórum síðan seinnipartinn í Alcatraz. Á fimmtudeginum kíktum við á golden gate brúnna en vorum frekar óheppin með útsýni þar sem að það var frekar mikil þoka og varla hægt að sjá neitt frá útsýnispallinum :(. við borðuðum hádegismat í litlum bæ við hliðina á brúnni sem að heitir Sausalito. Eftir hádegismat þá löbbuðum við smá á brúnni og síðan var farið að versla smá. Á föstudeginum þá fórum við að skoða um Castro (hjarta samkynhneigðarfélagsins í heiminum) og haight and Ashbury (hippahluti borgarinnar) og borðuðum kvöldmat með Amy og stelpunum. Á laugardeginum var síðan ferðinni heitið heim eftir æðislega ferð. 


hundaævintýri


Í gær fann Fem lítin krúttlegan hund úti, hann var ekki með ól þannig að hún tók hann heim til mín þar sem að ég er með fullt af dóti fyrir hund þar sem að ég á hund en ekki hún. Við gáfum honum að borða og leyfðum honum að sofa í búri frá hundinum mínum. Í dag að þá löbbuðum við í hús í nágrenninu til að tjékka hvort að einvher ætti hann en enginn sagðist eiga hann eða kannast eithvað við hann. Við ákváðum að fara með hann í dýraathvarfið og athuga hvort að þau gætu tekið við honum eða allavega tjékkað á því hvort að hann sé örmerktur og þá hægt að finna eigandann. Sem betur fer að þá er hann örmerktur og eigendurnir fundnir, en því miður að þá svara þeir ekki símanum og dýraathvarfið getur ekki tekið við honum því að það er í rauninni ekki dýrathvarf heldur dýraættleiðingastofa og þau hafa ekki nógu mikið pláss þannig að við verðum að geyma hundinn þangað til að eigendurnir hafa samband. Þannig að við skildum eftir símanúmerið okkar þannig að þau gætu haft samband við okkur ef að eigendurnir vildu fá hundinn sinn aftur. Þannig að núna er ég með 2 hunda á heimilinu og þar sem að Sally, hundurinn sem að ég er búin að hafa allt árið, er frekar illa við aðra hunda að þá er það aðeins erfiðara að vera með 2 hunda heldur en að ég hélt. það þarf að passa það að Sally sé ekki nálægt þegar að hinum hundinum er hleypt út til að pissa og svoleiðis, en þetta á allt eftir að leysast þar sem að ef að eigendurnir skila sér ekki að þá þurfum við að setja hann í athvarfið :(. en á meðan að þá á ég 2 hunda :P 


Sundliðið mitt :) (vantar nokkra)

kveðja Þjálfarann minn :(

krakkarnir sem voru með mér i sögu :) 

á hlekkjóttustu götunni í San Francisco 

San Francisco

töff vatnstankur á Alcatraz

Golden gate brúin

Golden gate brúin

Hipparúta í San Francisco

Hippa búð :P


-ekki meira í bili
-Sunneva

Wednesday, May 15, 2013

Dance explotion, Prom og fleira

Sko mig ég er dugleg að blogga.......sérstaklega núna þar sem að það hefur ekkert smá mikið verið að gerast hjá mér á þessum síðastliðnum 3 vikum......

Skiptinemar á leið á Prom





Ég og mom :)

Ég og Fem 

Sunneva Meistari í myndatökum

Dance explotion....


já eins og ég sagði í byrjun ársins að þá ákvað ég að fetja í fótspor bróður míns aðeins meira og ákvað að taka dans...það sem að ég vissi ekki þegar að ég skráði mig í dans að í maí myndi vera danssýning fyrir allan skólann.....en allavega að þá var þessi sýning fyrir 2 vikum og var það bara mjög gaman. Þetta var frekar löng vika þar sem að sýningin var á fimtudeginum og föstudeginum og á mánudegi og þriðjudegi voru dress rehersals þannig að ég þurfti að vera í skólanum til hálf 9 :/. En allavega að þá var dansinn sem að ég dansaði blanda af hip hop og jazz og var það bara mjög gaman. En klaufinn ég gerði auðvitað það sem að ég var hræddust um að mindi gerast, ég datt á sviðinu......sem betur fer að þá var það ekki stórt fall og ég var aftast á sviðinu og ljósin slökkt þegar að það gerðist þannig að voða fáir tóku eftir því :). Það var fenginn professional ljósmyndari eða myndatökumaður til að taka upp sýninguna og svo fengum við að kaupa diskinn þannig að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur þeir sem vilja geta fengið að sjá þessa æðislegu sýningu því að dansdeildin í skólanum er ekkert smá góð og er ég mjög ánægð með að hafa verið partur af henni :).

Prom

JIBÍÍÍÍ loksins var komið að því að langlifður draumur minn lifnaði við......það var komið að því að fara á prom. Miðinn á ballið kostaði 60 dollara eða í kringum 7000kr sem að mér fannst frekar dýrt.....en síðan fór ég að hugsa um hvað miðinn fyrir árshátíðina kostar og er það oftast í kringum 7500-8000kr þannig að það er bara svipað og innifalið í miðaverðinu var matur og eftirréttur :). Allavega að þá var ég ekkert smá spennt fyrir ballinu......ég var ekki með date en það var allt í lagi þar sem að ég fór með hinum skiptinemunum og engin af okkur var með date :) Ég ákvað að vera ótrúlega dugleg þennan æðislega laugardag og fór út að hlaupa um morguninn og fór síðan að gera mig klára :) um hálf 4 leitið fór ég til Fem og við gerðum okkur klárar saman.....förðunin tók ekki langan tíma eins og vanalega en síðan kom að erfiða hlutanum......hárið :/.......eins og flestir vita að þá er hárið mitt eitt þrjóskasta hár í öllum heiminum og margir sem ætla að gera eithvað fallegt í hárið á mér gefast oftast upp á því þar sem að ef að þú ættlar að gera eithvað annað en að slétta það að þá rennur það allt úr eftir 5 sekondur. En sem betur fer að þá er Fem alveg jafn þrjósk og hárið á mér þannig að henni tókst að gera fallegt í hárið á mér og auðvitað með hjálp frá hárspreyi að þá héllst það nokkurnvegin í hárinu á mér mest allt kvöldið eða allavega hlutinn af því hélst :P. Eftir að við vorum búnar að eyða í kringum 2 og hálfum tíma í að gera hárið á okkur klárt þá fórum við í kjólanna því að klukkan var orðin í kringum hálf 7 og við ætluðum að fara og taka myndir með öllum klukkan 7. Við fórum í garð sem að er rétt hjá mér og tókum flottar myndir þar á brú yfir lítin læk ekkert smá flott. Eftir myndatökurnar fórum við aftur heim til Fem því að mömmur okkar voru búnar að panta bíl til að keyra okkur á ballið......ekki alveg limmósía en svona bíl eins og forsetinn er keyrður um í :) ekkert smá töff. Þegar að við komum  á ballið fengum við okkur að borða og dönsuðum svo :) ég komst að því að prom er í rauninni ekkert mikið öðruvísi en árshátíðin í MS nema að hérna að þá ertu með date :) Þetta kvöld var geðveikt.

Þrumuveður og tornado viðvörun

núna áðan var ekkert smá stórt þrumuveður og var ég eins og lítið barn að fá sleikjó í fyrsta sinn eða eithvað því að ég hef aldrei séð svona mikið af þrumum áður....allavega að þá var ég og Fem að horfa á sjónvarpið þegar að við heyrðum í sírenum og við héldum að elding hafði farið niður í tré og að það hafi kveiknað í og að þetta væri slökkviliðssírena........en þegar að við fórum fram að tala við mömmu að þá sagði hún okkur að þetta væri tornado viðvörun og að við ættum að fara inná baðherbergi. Ég og Fem vorum ekkert smá spenntar og pínku hræddar á sama tíma.....Elise og Leigh fóru á netið og tjékkuðu á því hvort að veðrið væri svakalega slæmt og hvort að stormurinn myndi fara yfir þann part af Dallas þar sem að við erum í og eftir smá tíma hættu sírenurnar og við sáum að við ættum að vera í góðum málum og að stormurinn fer sennilega ekki yfir þann part af dallas sem að við erum í :) þannig að núna sit ég hérna inni í herbergi og er að skrifa þetta blogg og hlusta á þrumurnar og sé blossann af eldingunum og hef það kósí.


ekki meira í bili

-Sunneva



Friday, April 26, 2013

mavricks leikur, kveðjustund, heimsókn frá pabba og fleira

Jæja ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á því hvað það er langt síðan að ég bloggaði síðast það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég hef ekki haft tíma til að setjast niður og blogga.....Allavega að þá er ég búin að vera hérna í 8 og hálfan mánuð....það er ekkert smá sem að tíminn líður......ég að vera ég að þá er ég auðvitað búin að reikna út hvað það eru margir dagar þangað til að ég kem heim á klakann......en ég tel ekki niður ég reikna það bara stundum út og í dag eru 60 dagar þangað til að haldið verður aftur heim. En allavega að þá ætla ég að fjalla um þá hluti sem að eru búnir að vera að gerast hjá mér að undanförnu.....


Mavricks leikur


Í lok mars að þá fékk ég 2 frídaga (28, 29 mars) það er í rauninni páskafríið mitt því að þetta var helgina fyrir páska, en í alvörunni að þá eru þessir dagar kallaðir inclement weather days (í bandaríkjunum færðu víst 2 frídaga á ári vegna veðurs og ef að þeir eru ekki nýttir yfir árið að þá fær skólinn að velja daga til að nýta þetta frí) og á þessum fimmtudegi (28.mars) þá fór ég á NBA körfubolta leik sem að var bara mjög gaman. Vorum ca 20 krakkar frá AFS á þessum leik.....íþróttahöllin sem að leikurinn var í var ekkert smá flott.....en stemningin ekki sú sama og á úrslitaleikjum Grindavíkur í körfubolta ....... haha. Á þessum leik voru Dallas Mavericks og Indiana pacers að keppa og því miður að þá tapaði Maveriks en það er allt í lagi það var samt ekkert smá gaman á þessum leik :).


kveðjustund


Því miður að þá þurfti ég að kveðja þýska skiptinemann Izzy sem að ákvað að fara heim snemma út af fjölskyldumálum :(. Það var mjög erfitt að segja bless við hana þar sem að hún er búin að vera hluti af þessari frábæru reynslu minni hérna úti og svo allt í einu var hún bara farin heim :( En sem betur fer gerir internetið það auðveldara að halda í sambandi við fólk og þótt að hún sé ekki lengur hérna að þá get ég samt talað við hana reglulega :)


Mynd af mér á vegg skólans


Ég var einhverntíman áður búin að nefna það að það var tekin mynd af mér til að hengja upp á gang í skólanum sem að er kallaður hall of hornes og eru myndir þar af krökkum í skólanum sem að hafa unnið til einhverja verðlauna í íþróttum þetta skólaár, og er myndin mín þarna uppi því að ég var í boðsundssveitinni sem að lenti í 3. sæti á District sundmótinu :). myndir koma fljótlega á facebook :)

Heimsókn frá pabba


Eftir að hafa verið frá mömmu og pabba í 8 og hálfan mánuð að þá fékk ég heimsókn frá pabba í nokkra daga :) Það var alveg æðislegt. Ég fór og sótti hann á flugvöllinn á föstudagsmorguninn og við fórum niður í bæ og borðuðum hádegismat með Elise (mömmu minni) og fórum síðan á the Perot safnið sem að er vísindasafn og er ekkert smá flott. Um kvöldið komu Fem og fjölskyldan hennar í heimsókn og borðuðu kvöldmat með okkur. Á laugardeginum þá fór ég með Pabba og Elise að skoða Cowboy Stadium (völlurinn þar sem Dallas Cowboys spila amerískan fótbolta á) , við fórum í VIP tour og var það ekkert smá flott, fengum að fara í búningsklefa klappstýranna og leikmannana og var það ekkert smá töff. Ég og pabbi fórum meira að segja í búninga sem voru þar inni og vorum að þykjast spila amerískan fótbolta og var það ekkert smá gaman. Þegar að við komum heim bauð ég Martin (skiptineminn frá Danmörku) og Nadju eða Nacho eins og við köllum hana (skiptineminn frá þýskalandi) í kvöldmat til að hitta pabba. Á sunnudeginum fórum við á hafnaboltaleik. Leikurinn byrjaði klukkan 2 og var ekki búinn fyrr en klukkan hálf 6 en það var samt ekkert smá gaman. snillingurinn ég ákvað að bera á mig sólarvörn þar sem að ég vissi að ég myndi vera úti í sólinni allan daginn.....en ég bar bara á hendurnar af því að ég var með derhúfu og gerði bara ráð fyrir því að ég myndi ekki brenna á hálsinum......en rauðhærðu genin mín tóku yfir og skaðbrenndist ég á hálsinum og fanst mér það frekar fyndið þar sem að ég vissi að ég bar ekki á mig sólarvörn þar. Við unnum leikinn 11-3 eða 6 man ekki alveg hvort það var haha. Á mánudagsmorgun þurfti ég að kveðja pabba aftur :( eftir að pabbi var farinn leit ég á herbergið mitt og var það frekar tómlegt þar sem að ég bað pabba um að taka slatta af dótinu mínu heim þannig að ég myndi ekki vera með yfirvigt :).


lítið að gera í skólanum


Þessa síðastliðna viku hefur verið TAKS próf fyrir junior nema en þar sem að ég er skiptinemi þá þarf ég ekki að taka þessi próf og þau taka allan daginn, og þar sem að ég flokkast sem junior hérna úti að þá eru flest fögin mín junior fög. En því að kennslustjórinn vildi ekki leyfa litlu skiptinemunum að vera heima þessa daga að þá þurfti ég að fara í skólann til að gera nákvæmlega ekki neitt og leiddist mér ekkert smá mikið......en ekkert sem að ég get gert í því þannig að ég fann mér bara eithvað að gera....endaði meira að segja á því að spurja vin minn hvort að ég mætti fá stærðfræðilærdóminn hans til að gera í sögutíma því að ég hafði ekkert að gera og auðvitað leyfði hann mér það þar sem að hann hatar stærðfræði á meðan að mér finst hún frekar skemmtileg :).


Dance Explotion og prom


Í næstu viku verður ekkert smá mikið að gera hjá mér........á mánudag og þriðjudag verð ég í skólanum til í kringum hálf 8 á dansæfingum.....á fimmtudag og föstudag er ég að dansa á danssýningu í skólanum sem að heitir Dance explotion.....og þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur ég kem heim með myndband af danssýningunni þannig að þið getið fengið að sjá dansinn minn :P......og á laugardaginn eftir er PROM :) því miður að þá er ég ekki með neitt date en það er allt í lagi því að enginn af skiptinemunum er með date og ætlum við öll bara að fara saman, þótt að það eigi mjög líklega eftir að enda á að vera bara ég og Fem því að Nacho og Martin eru ekki jafn áhugasöm á prom og ég og Fem....þótt að hún sé búin að fara á Prom í Hollandi en það er ekki það sama, þannig að á morgun að þá erum við að fara í Prom kjóla verslunarleiðangur sem verður vonandi bara gaman.

þetta blogg var aðeins lengra en ætlað var :)

Myndir koma fljótlega á facebook :)

ekki meira í bili 

-Sunneva

Friday, March 22, 2013

Spring break :)

Góðan og blessaðan daginn kæru ættingjar og vinir................mér finst eins og að það hafi bara verið í gær sem að ég var að kveðja ykkur öll og leggja af stað í ævintýra ferð til bandaríkjanna í ár.......en það er víst aðeins lengra því að ég er búin að vera hérna í 7 og hálfan mánuð.....alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt þegar að þú hefur gaman. Allavega að þá er hérna smá stutt/langt blogg (er ekki viss hvort það verði stutt eða langt :P)


Spring break


þann 8-18 mars upplifði ég spring break :). Spring break er ekki alveg eins og bíómyndirnar vilja að við höldum haha eða allavega að þá var upplifunin mín ekki sú sama. Ég fór sem sagt til Destin í Flórida með mömmu og Fem. Við löggðum af stað klukkan 7 á föstudagsmorgni (jess fékk að sleppa föstudeginum) í 14 tíma bílferð til Flórida. Bílferðin var svakalega skemmtileg :) og tókum við fullt af skemmtilegum myndum. Þar sem að hvorki ég né fem meigum keyra hérna úti að þá þurfti Elise að keyra allan tímann og er það frekar erfitt þannig að Fem og ég gerðum samning um að manneskjan sem að sat frammí þurfti að halda sér vakandi með Elise og tala við hana svo að hún myndi örugglega ekki sofna. Þessi regla var óvart brotin nokkrum sinnum þar sem að á tímabili var mjög erfitt að halda sér vakandi. Við gistum í mjög fallegri íbúð sem að var mjög stutt frá ströndini og það fyrsta sem að við gerðum þegar að við komum þangað var auðvitað að fara í göngutúr til að finna hvar við gætum farið á ströndina. Á degi 2 þá fórum við í göngutúr á ströndinni um morguninn og var það mjög fallegt, aðeins hvassara en við vorum að vona en ströndin var ekkert smá falleg. Eftir morgungöngutúrinn var auðvitað klætt sig í bikinýin og borið á sig sólavörn og gert sig klára til að fara að tana á ströndini. Við ákváðum að sjá hvort að það væri kanski aðeins minna hvasst á panama beach sem að var aðeins í klukkutíma fjarlægð. Ég og fem vorum ekkert smá spenntar og klæddar í strandarföt enda í kringum 20°C úti. En auðvitað þar sem að óheppnin ákveður að elta mig hvert sem að ég fer að þá um leið og við komum á ströndina að þá fór sólin í burtu og skildi skýin og vindinn eftir þannig að það varð ískalt á ströndinni. Við entumst í ca hálftíma á ströndinni og urðum svo svangar að við ákváðum að fara eithvert að fá okkur hádegismat/kaffitíma. Þegar að við komum aftur heim upp í íbúðina þá chilluðum við þar í dágóðan tíma  þangað til að við ákváðum að fá okkur að borða kvöldmat. Við ákváðum að vera ofur amerísk og pöntuðum pizzu og leigðum bíómyndir og horfðum á what to expect when you're expecting og borðuðum pizzu. dagur 3 var sennilega besti og uppáhalds dagurinn minn í flórida. Þegar að við vöknuðum ákváðum ég og Fem að við ætluðum að fara út að hlaupa á ströndinni, við hlupum að sttröndinni og aðeins meðfram ströndinni, settumst síðan niður á ströndinni í ca hálftíma og hlupum síðan til baka. Þar sem að ég var snillingur og bar ekki á mig sólarvörn um morguninn áður en að við fórum út að hlaupa þá brann ég svolítið á maganum og síðunni en ég passaði mig svakalega vel með allt annað þannig að ég brann voðalega lítið. Eftir hlaupið að þá var skellt sér í bikiný, makað á sig sólarvörn (30 og 50 þar sem að ég fann fyrir að ég væri farin að brenna) og skellt sér í sólbað við sundlaugina (sundlaugin var í kringum 15°C þannig að ekki var hægt að fá sér sundsprett :( ) og vorum við úti í sólbaði í ca 2 tíma að lesa bækur og hlusta á tónlist. Eftir að við vorum komnar með nóg af því að sitja við sundlauginna þá fórum við í annan göngutúr meðfram ströndinni og var það frábær ferð og skemmtum við okkur frábærlega :). um kvöldið ákváðum við að fara á veitingarstað sem að eigandi íbúðarinnar mælti með þótt að hann væri aðeins í dýrara lagi en það var í lagi að dekra við sig einu sinni  í vorfríinu :). Þessi veitingarstaður var svipaður og lava í bláa lóninu :). kvöldinu var síðan eytt í að horfa á aðra mynd :). 4. dagurinn var ekki eins útivistasamur þar sem að við höfðum ekki mikinn tíma til þess að vera úti. við fórum í klukkutíma göngutúr meðfram ströndinni og fórum síðan heim. restin af deginum var rigning þannig að við leigðum meiri myndir og horfðum á þær. um kvöldið borðuðum við á einhverjum veitingastað sem að einhvað fólk sem að við kynntumst fyrr um helgina átti. 5 dagurinn var síðan bara bílferð á leiðinni heim.
Restin af spring break var bara svaka kósí, í kringum 20-28°C á hverjum degi þannig að auðvitað var deginum eytt í sólbaði :P (með 50 vörn takkfyrirgóðandaginn en náði samt að tana/roðna).

Eftir spring break þá var loksins komið að því sem að ég var búin að bíða eftir síðan í byrjun ársins í skólanum í líffræði og ein af stærstu ástæðunum fyrir því að ég valdi lífffræði...........við byrjum á því að kryfja grís. Fyrsta daginn þá fengum við grísinn en gerðum ekki neitt, bara að mæla hvað hann var stór og skoða augun og eithvað (þessi grís er fósturgrís þannig að hann hefur aldrei verið á lífi/aldrei verið fæddur). á degi 2 þá áttum við að byrja á því að taka húðina af honum en þar sem að óheppnin elltir mig alltaf að þá sprungu einhverjar pípur í vaskinum og stofan var á floti þegar að við áttum að vera í tíma (bara tíminn minn allir hinir tímarnir var allt í lagi), þannig að tíminn minn var einum degi eftir á. Allaveg á degi 3 þá byrjuðum við að taka húðina af og var það mjög áhugavert þar sem að við þurfum að passa að við skerum ekki of dúpt og tökum vöðvan með og eithvað svoleiðis, og svo í dag kláraði ég næstum því að taka skinnið af en þarf að bíða þangað til að á mánudaginn til að klára. Flest allar stelpurnar í tímanum eru svakalegar pempíur og geta varla snert neitt án þess að sótthreinsa það eftir á og kúgast við lyktina sem að er í stofunni því að grísirnir þurfa að vera geymdir í femaldrahæt (veit ekki hvernig það er skrifað en það er einhver vökvi sem kemur í veg fyrir að grísin byrji að rotna, mjög sterk lykt en hún er ekki það vond bara mjög sterk plastlykt).
næstu 6 vikurnar í líffræði þá mun ég vera að kryfja þennan grís, skoða vöðvana, hjartað, lungun og margt fleira spennandi hluti.

þetta er nóg í bili :)
nokkran myndir :)
skemmtileg bílferð :)
                                                            
Louisiana state merkið :)
 
Mississippi skiltið :) og Mississippi áin í bakgrunni :)
 
Florida :) dagur 1
 
Byrjum að tana :)
 
æðislegi dagurinn á ströndinni :)
 
Fallega ströndin í Destin :)

-Sunneva

Friday, March 1, 2013

Regionals, superbowl, og valentínusardagurinn

Jæja þá er kominn sá tími aftur þar sem að ég þarf að blogga svo að fólkið á klakanum geti fylgst með ferðum mínum hérna úti :) margt sem hefur gerst síðan ég bloggaði síðast.....


Regionals

Já ég saði ykkur frá því í síðasta bloggi að ég komst inná næst stærsta sundmót tímabilsins (regionals) og var það 8-9. febrúar. Ég fékk að sleppa skólanum á föstudeginum þar sem að mótið  var á skólatíma og var ég mjög ánægð með það:). Ég þurfti að vera mætt uppí skóla klukkan hálf 7 að morgni til því að við þurftum að fara upp í sundlaug í sendiferðabíl (verðum að fara öll saman þar sem að þjálfarinn ber ábyrgð á okkur á mótinu). Þegar komið var í Rockwall (sundhöllin) þá var ég mjög ánægð þar sem að regionals er sett upp eins og íslensku sundmótin sem að ég var vön áður en að ég kom hingað :). Það var þessi stóri skjár með nöfnunum hjá keppendunum sem voru að synda og var nafn hvers og eins lesið upp áður ein þeir syntu. Það eina sem að vantaði uppá til að þetta yrði eins og venjulegt sundmót var keppendaherbergið. Allavega að þá gekk mér bara mjög vel á þessu móti á fyrra deginum. Ég byrjaði í fyrstu greininni minni sem að var boðsund.....ég syndi 50 flug í fjórsunds boðsundinu....við bættum ekki tímann okkar en ég bætti persónulega tímann minn ír 32 sekondum niður í 30 sek og var ég mjög sátt með það. Eftir boðsundið hafði ég dágóðan tíma til að slaka á en samt ekki alltof langan tíma.....næsta grein var 100 flugsund........ég var ákveðin í því að ég ætlaði að bæta tímann minn allavega eithvað og hugsaði ekki um neitt annað en að komast undir 1.08 minotur.......og hepnaðist það vel þar sem að ég fór á 1.07 :). Eftir flugsundið hafði ég bara eithvað á milli 5-10 mínotur þangað til að ég þurfti að keppa aftur í 500 skriðsundi.....það gekk ekki alveg jafn vel......ég gat synt fyrstu 100 yards og var svo dauð.....alltof stutt á milli greinana og fór ég á 7 sekondum verri tíma en að ég átti (átti 6:20 fór á 6.27). Árangur regionals : komst í úrslit í 200 yard fjórsunds boðsundi (13. sæti) og 100 flugsundi(12. sæti) og bætti tímann minn í báðum greinum :). Á laugardeginum þá voru úrslitin og gekk það bara ágætlega....ég bætti mig í hvorugum greinunum.......en ég er mjög sátt með árangurinn minn á þessu móti og með árangurinn minn yfir allt tímabilið :) eftir úrslitin á laugardeginum þá fórum við öll sem komumst í úrslitin út að borða til að fagna loka á góðu tímabili og var það alveg frábært, mér leið eins og ég væri stödd í pottinum með gamla upprunalegu sunddeildinni að spjalla eftir æfingu og var það algert æði :)..........núna er ég búin að vera í fríi í 3 vikur......æfingar byrja aftur 21. mars og hlakka ég mjög mikið til :).


Superbowl

Þá ég ég búin að upplifa fyrstu og örugglega einu superbowl keppni á æfi minni og var það bara mjög skemmtileg upplifun. Ég Elise og Leigh (mamma og pabbi hérna úti) fórum til vinafólks þeirra í hamborgara (ef það má kalla það hamborgara ætti frekar að kallast risa kjötfjall). Ég veit ekki enþá  um hvað amerískur fótbolti gengur eða hvernig reglurnar virka þannig að meirihluta leikjarins sat ég bara og glápti á sjónvarpið án þess að fatta neitt. Aðal gamanið fyrir mig voru auglýsingarnar........fólk var víst með einhverskonar veðmál um hver væri með bestu auglýsingarnar og eithvað svoleiðis og fannst mér mjög gaman að dæma hversu góðar þær voru. Hálfleiks sýningin var mjög flott .....sérstaklega sviðið :P. Eftir hálfleik þá byrjaði leikurinn aftur eins og á að gerast en þegar að ca 5 min voru búnar af 3 hluta að þá fór rafmagnið af helmingi vallarins og helmingur af útsendingarfólkinu og öllu því datt út......auðvitað gerist eithvað svona þegar að ég er að horfa á leik....ég smita greinilega óheppnina mína frá mér haha.....allavega að þá þurfti að taka hlé á leiknum þangað til að rafmagnið var komið aftur á og tók það í kringum klukkutíma. Þegar að rafmagnið var komið aftur á þá fór allt í gang aftur og allt fór vel á endanum......það er að segja fyrir liðið sem vann þar sem að 49ers og ravens voru að keppa og 49ers hafa ekki tapað superbowl leik sem að þeir hafa keppt í en í ár að þá unnu ravens. Ekki gott fyrir 49ers.


Valentínusardagurinn

Já valentínusardagurinn............fyrir íslendinga og flest alla í heiminum held ég er valentínusardagurinn bara ósköp venjulegur dagur með þeirri undantekningu að þú dekrar kanski smá við kærastann/kærustuna/eiginmanninn/konuna. Nei ekki fyrir bandaríkjamenn...........valentínusardagurinn er dagur þar sem að bandaríkjamenn verða alveg kol kreisí.........í skólanum var fólk að dreyfa nammi, önnur hver stelpa var labbandi um skólagangana með bangsa sem að er stærri en hún, og þetta gera ekki bara pör heldur allir  fólk sem að er ekki í sambandi gefur bestu vinum sínum og eithvað svoleiðis....það sem að við sjáum alltaf í bíómyndunum á valentínusardaginn og við höldum að það séu ýkjur er alveg satt nema að það er bíómyndir x2. En annars var valentínusardagurinn bara venjulegur fimmtudagur fyrir mig :).



Saturday, February 2, 2013

próf og district

jæja það er víst komið að öðru bloggi...........

síðustu vikur hafa verið frekar uppteknar hjá mér........ 

fyrir 2 vikum voru lokaprófin og voru þau miklu auðveldari heldur en lokaprófin á íslandi ég náði öllum prófunum og lægsta einkuninn mín var 6,8 og var það í ensku :(. eins og ég sagði í síðasta bloggi þá er lokaprófs vikan þannig að á mánudeginum förum við í venjulegan skóladag og á þriðjudagsmorgun þá ferðu í fysta tímann þinn og hefur 2 tíma til að klára prófið fyrir þann tíma og skiptir svo um fag og hefur 2 tíma til að klára það próf og færð síðan að fara heim um hádegi og læra fyrir næsta próf (nema hjá mér var sundæfing næst á dagskrá). fyrsti tíminn minn er sund þannig að ég var í 2 tíma að gera ekki neitt sem að var í rauninni alveg fínt þar sem að ég var með krökkunum úr sundliðinu :). annar tíminn minn var enska og var prófið frekar erfitt, en samt ekki því að þetta  var bara krossapróf og alltaf hægt að nota útilokunaraðferðina :).  á miðvikudaginn var algebra og tölvuvísindi (computerscience), og gekk mér frekar vel í báðum, í algebruprófinu voru hlutir sem var ekki búið að kenna okkur og var kennarinn minn frekar pirruð á því og í öllu districtinu þá var hæðsta einkunin 8,3 og ég fékk 8,0 þannig að ég er mjög sátt með þá einkun :). á fimmtudaginn var amerísk saga og líffræði, saga var í rauninni eina fagið þar sem að ég lærði almennilega fyrir því að ég get bara ekki fengið sögu til að festast í hausnum á mér :/ en samt fékk ég 7 á lokaprófinu sem að ég tel nú bara vera frekar gott þar sem að ég er í AP sem er undirbúningur fyrir háskóla og ég hef aldrei tekið ameríska sögu áður. Á föstudeginum var það spænska og dans, spænska var mjög létt því að þetta var krossaspurningapróf eins og allt annað :P bandaríkjamenn eru víst svakalega mikið fyrir krossapróf þar sem að flest próf eru krossapróf. Sum prófin í grunnskóla voru erfiðari heldur en þessi lokapróf. En fyrsta önnin mín er lokið og er ég mjög sátt með útkomuna :).

Helgina eftir prófin var Martin Luther King day þannig að það var enginn skóli og starfsdagur á þriðjudeginum þannig að ég fékk 4 daga helgi sem að var alveg æðislegt :). Á þriðjudeginum fór ég að versla kjól fyrir sadie's ballið með Fem og Izzy (Sadie's er ball þar sem að stelpurnar spurja strákana um að koma með sér á ball).  

Helgina 25.-27. janúar var mid year orientation sem að var ekkert smá mikið fjör. Við vorum einvherstaðar lengst út í buska á einhverju kúreka hóteli og byrjuðum daginn á námskeiðum eins og vanalega en eftir kvöldmat þegar að námskeiðin voru búin þá skemmtum við okkur konungslega. Við sungum í karaókí, dönsuðum skemmtilega dansa, kepptum í húla húpp keppni og er ég hula hoop meistari 2013 :) . Við settum saman bál og grilluðum smores sem að er ótrúlega gott en mér finst bara venjulegir grillaðir sykurpúðar miklu betri en s'mores. Við fórum að sofa um miðnætti því að við þurftum að fara í morgunmat um hálf 9. ég ætlaði að vakna með Fem um korter yfir 7 til að fara í sturtu áður en að allar stelpurnar vöknuðu og sturturnar uppteknar. Ég stillti vekjaraklukkuna á símanum til kroter yfir 7 og fór svo að sofa en þegar að allir voru farnir að sofa og klukkan var í kringum korter yfir 1 og ég nýsofnuð þá ákvað síminn minn að breyta tímanum í korter yfir 7 og hringja vekjaraklukkuni, ég hélt náttúrulega að klukkan væri korter yfir 7 þannig að ég vakti fem og sagði henni að við ættum að vakna og henni fanst það eithvað sktítið og sagðist ekki einu sinni vera búin að sofna þannig að það gæti ekki verið að klukkan væri orðin korter yfir 7 þannig að ég leit á aðra klukku og varð mjög hissa en líka mjög ánægð með að geta farið aftur að sofa :) 



District sundmótið var á föstudaginn síðastliðinn. Sundliðið fór í morgunmat hjá coach Bates (þjálfaranum mínum) og sögðu allir að allir ættu að vera "dressed up" eða í fínum fötum afþví að þetta er síðasta mót tímabilsins, ég gerði það náttútulega og fékk Fem (varastílistinn minn þar sem ég hef ekki aron með mér hérna :P) til að hjálpa mér að finna outfit. Við fundum sætt outfit sem að ég fékk mjög mikið af hrósum fyrir, en þegar að við komum í morgunmatinn þá kom það í ljós að þetta er hrekkur sem að eldri krakkarnir gera á busana og nýja fólkið því að enginn var í fínum fötum það voru allir í joggingsbuxum og hettupeysum nema busarnir og ég :(, það var ekki gaman :(, en ég harkaði af mér og ákvað að skipta ekki um föt og var í sparifötum allan daginn. Við áttum að fara í fyrstu 6 tímana og eftir 6. tíma fórum við í kennslustofu Bates og fengum pasta að borða og fórum svo upp í sundlaugina þar sem að við vorum að hjálpa til við að gera allt klárt fyrir mótið þar sem að mótið var haldið í Loos sundlauginni sem að er okkar sundlaug þannig að við þurftum að sjá um allt þetta dæmi. Upphitun byrjaði klukkan 5 og var það verra en á stærstu mótunum heima því að það var ekki einusinni pláss fyrir öll liðin til að hita upp og var það mjög óþægilegt og alltof þröngt,  en við náðum samt að hita upp :). Ókey þá er komið að sundinu, fyrsta greinin mín var 200 yards fjórsunds boðsund þar sem að ég synti flugsund, við lentum í 3. sæti þar og komumst á regionals og bættum tímann okkar um sekondu :). Næsta greinin mín var 100 yard flugsund, ég vissi að ég var ekki að fara að ná gullinu þar því að ég var að keppa við Elenu sem að er ein af bestu sundmönnunum í liðinu og aðalsundið hennar er líka flugsund og er besti tíminn hennar 1.04 og minn 1.08 en það er allt í lagi því að markmiðið mitt var að ná 3. sæti, ég náði því reyndar ekki en 4. sætið er nógu nálægt, sérstaklega þegar að það var ekki nema hálf sekonda milli mín og 3. sætisins :). Og svo að lokum var það 500 yard skriðsundið, ég bætti tímann minn þar um 7 sekondur og fór frá 6.27 niður á 6.20 og lenti í 6. sæti og réttsvo komst áfram á regionals (efstu 6 sætin fá að fara á regionals ). Allavega að þá var ég mjög sátt með þennan árangur og fæ ég að sleppa skóla til að fara á sundmót þar sem að  mótið er þann 8. febrúar og er um morguninn :) eins æðislegt það er að sleppa skóla að þá er samt alltaf slæmt að missa heilan dag og ég hata að gera make-up work þannig að ég er mjög heppin með að þessi dagur er early release day sem að þýðir að skóladagurinn er bara hálfur og ég missi ekki alltof mikið úr skóla :).

Ekki meira í bili
-Sunneva

Saturday, January 12, 2013

dvölin hálfnuð

Tíminn líður ekkert smá hratt hérna hjá mér í Texas. 5 mánuðir liðnir og dvölin mín hérna hálfnuð :O, ég er bara ekki að trúa því að ég sé búin að vera hérna í heila 5 mánuði mér fints enþá eins og ég hafi farið um borð í flugvélina á leið hingað í gær haha. Áður en að ég veit að því verð ég í flugvélinni á leiðinni heim :O, tíminn líður hratt þegar að maður er að skemmta sér og er það einmitt það sem e´g er að gera hérna :). 


Áramótin hérna voru mjög spes............engin kalkúnn og engin ræða og verst af öllu............. engir flugeldar :(. Ég er ekki að segja að áramótin hérna hafi verið slæm alls ekki, þau voru alveg æðisleg. fyrripart gamlársdagsins sat ég heima að gera ekki neitt með strákunum og Fem og skypaði smá við fólkið heima í gamlárspartýinu, seinnipartinn fór ég í AFS gamlárspartý sjálf :). Partýið var hjá Lynn sem að er AFS coordinator (stjórnarfulltrúi eða eithvað svoleiðis hún er yfirmanneskjan hjá skiptinemunum í dallas ) og á hún ekkert smá flott hús. Húsið hennar er á 2 hæðum og er einhverstaðar lengst út í buska. Í partýinu var ca helmingur skiptinemanna og skemmtum við okkur konunglega.  við horfðum á niðurtalninguna á í miðnætti í sjónvarpinu og voru pínkulitlir flugeldar en það var í mestalagi ein terta niðri í bæ sem að við fengum bara að sjá í sjónvarpinu :/, allavega hjá skiptinemunum í dallas er það víst einhver siður að þau hoppi í sundlaugina eftir miðnætti á gamlárs og var ca helmingurinn af skiptinemunum sem að gerðu það í ár því að það var ca -3°C úti og sundlaugin ekki nema 15-17°C og ekki vildi neinn vera veikur í síðustu vikunni í jólafríinu (ég hefði hoppað í laugina ef að ég hefði tekið með mér auka föt en ég tók ekki með mér auka föt og ég var í fínum kjól). Eftir miðnætti fundum við ipod hátalara og sátum öll í stofuni og vorum að syngja og dansa við fullt af lögum og var það ekkert smá gaman :) ég og Fem vorum fyrstar að fara upp í herbergi að sofa og það var klukkan hálf 5 og hinir fóru að sofa klukkan hálf 6 og vorum við vakin um 10 leitið, ekki mikinn svefn en samt þess virði :).


Skólinn er byrjaður aftur eftir frekar stutt jólafrí eða bara 2 vikur :(, og næsta vika er finals vika sem að mér finst frekar skrítin tímasetning, mér finst það meika meira sens að hafa lokaprófin í desember í staðin fyrir í janúar en allavega lokaprófsvikan virkar þannig að ég fer í venjulegan skóladag á mánudaginn og svo á þriðjudaginn fer ég bara í próf og er það byggt þannig up að fyrsta daginn fer ég í 2 próf semsagt 1. og 2. tíma og á miðvikudaginn fer ég í prófin úr 3 og 4 tíma og svo framvegis. High school er í rauninni bara grunnskóli 2 árum lengur. En allavega að eftir næstu viku fæ ég 4 daga helgi og svo byrjar vorönnin :). 


Það er allt að fara á flug í sundinu þar sem að district er 1. febrúar, District er stærsta sundmótið þar sem að allir í liðinu fara á og allir skólar í skólasvæðinu mínu keppa á. Ef að þú nærð 1 af top 6 tímunum í einhverjum af greinunum þínum, bæði einstaklings og boðsund, þá færð þú að fara á regionals, regionals er stærra en district því að þar er allir sem eru í mínu region (ég veit ekki alveg hver munurinn er á district og regionals en ég veit að þú þarft að ná tímanum til að komast á regionals en allir fá að keppa á district). Ég hef mjög góða möguleika á því að komast á regionals þar sem að ég er með fastan lið í fjósunds boðsundssveitinni sem flugsunds manneskjan og erum við mjög góðar :), ég var líka að skoða keppendalistann frá regionals í fyrra og ég get kanski fengið brons og mögulega silfur í 100 yard flugsundi, þar sem að besti tíminn var 1.05, næstbesti tíminn var síðan 1.10 og ég á 1.08 þannig að Elena, stelpan sem að er betri en ég í flugsundi myndi ná gullinu þar sem að tíminn hennar er 1.04, svo stelpan sem fékk 1.05 og svo ég með 1.08 (markmiðið mitt er samt að bæta tímann niður í allavega 1.06 :)).  Þar sem að sundlaugin sem að við æfum í var lokuð í jólafrínu, og ekki fóru allir að synda í jólafríinu þá tók Bates (þjálfarinn minn) þá ákvörðun að við fengum ekki neitt meira frí (við erum vön að fá frí á fimmtudögum því þá þarf hún að fara á fundi á morgnanna) við erum meira að segja með æfingar í finals week, nema að æfingarnar í þeirri viku verða um 2 leitið eftir prófin í staðin fyrir að vera um morguninn, og á frídeginum okkar snemma um morguninn, en það er allt í lagi því að æfingin skapar meistarann :)


ekki meira í bili       

              -Sunneva