jæja þá er bara komið að því...aðeins 2 vikur í að ég kem heim á klakann :) Það er svolítið langt síðan að ég bloggaði síðast og ég man ekki nákvæmlega alllt sem að ég er búin að vera að gera síðan þá en ég ætla að gera mitt besta að rifja upp fyrir ykkur :)
Síðasti skóladagurinn
Já síðasti dagurinn í W.T.White high school var frekar erfiður, þótt að síðasti skóladagurinn var í rauninni ekki kveðjustundin þar sem að ég átti eftir að fara í próf í flest öllum tímunum þannig að ég átti eftir að hitta flest alla kennarana aftur áður en að skólaárið mitt var búið :). Ég ákvað samt að vera svaka næs og gaf uppáhalds kennurunum mínum litlar gjafir og svo gaf ég restinni þakkarbréf. Allavega að fyrsti prófdagurinn var fyrsta kveðjustund og ein af þeim erfiðustu hingað til, ég þurfti að kveðja sundliðið sem var búið að hleypa mér inn í þessa litlu fjölskyldu :( eftir að nokkur tár voru fallin þá jafnaði ég mig og gat kvatt þau almennilega og fékk meira að segja mynd af mér með þeim :). það var aðeins auðveldara að kveðja alla hina kennarana en samt ekki auðvelt. Sögukennarinn minn (ein af uppáhalds kennurunum mínum) var með helminginn af tímanum sem að við fengum tileinkaðan mér ( saga er AP tími (advanced placement) sem að er college tími og þau tóku lokaprófið miklu fyrr þannig að í staðin fyrir próf þá þurftum við að vera með frían tíma með kennaranum í 2 klukkutíma), hún lét alla kvitta á blað fyrir mig og skrifa kveðju til mín, hún tók nokkrar myndir með mér og svo af öllum hópnum og bað mig síðan um að skrifa niður heimilisfangið mitt svo að hún gæti sent mér bréf eða eithvað svoleiðis :P. allavega að þá var loksins allar kveðjurnar í skólanum búnar og hið langþráða sumarfrí loksins komið :P
San Francisco
Ég og Fem ákváðum að við vildum fara í eina ferð í viðbót áður en að við færum heim og þar sem að Högni býr í San Francisco þá ákváðum við að tjékka á því hvort að við gætum ekki farið til San Francisco og gist hjá þeim og auðvitað var það ekkert mál. Við flugum til San Francisco á mánudegi og komum heim á laugardeginum og var þessi ferð ekkert smá mikið fjör. Ég og Fem vorum vaktar á hverjum morgni í kringum 7 leitið því að Alexandra og Ísabella vöknuðu og eru ekki neitt svakalega góðar í því að hafa hljótt en það er allt í lagi þar sem að það gaf okkur meiri tíma til að gera aðra hluti í borginni. Við eyddum fyrri hluta dags með Högna og stelpunum og seinnipartinn vorum við bara ég og Fem. Fyrsta daginn okkar að þá fórum við niður í bæ og keyptum rútumiða og miða fyrir Alcatraz daginn eftir. Um 2 leitið hittum við vin hennar Fem sem að var að fara heim til Hollands um morgunin. Við eyddum deginum með honum og einhverjum vini hans og var það ekkert smá skemmtilegt og gagnlegt þar sem að við löbbuðum út um allt og náðum að ná áttum. Á miðvikudeginum þá kíktum við í academy of science með stelpunum og fórum síðan seinnipartinn í Alcatraz. Á fimmtudeginum kíktum við á golden gate brúnna en vorum frekar óheppin með útsýni þar sem að það var frekar mikil þoka og varla hægt að sjá neitt frá útsýnispallinum :(. við borðuðum hádegismat í litlum bæ við hliðina á brúnni sem að heitir Sausalito. Eftir hádegismat þá löbbuðum við smá á brúnni og síðan var farið að versla smá. Á föstudeginum þá fórum við að skoða um Castro (hjarta samkynhneigðarfélagsins í heiminum) og haight and Ashbury (hippahluti borgarinnar) og borðuðum kvöldmat með Amy og stelpunum. Á laugardeginum var síðan ferðinni heitið heim eftir æðislega ferð.
hundaævintýri
Í gær fann Fem lítin krúttlegan hund úti, hann var ekki með ól þannig að hún tók hann heim til mín þar sem að ég er með fullt af dóti fyrir hund þar sem að ég á hund en ekki hún. Við gáfum honum að borða og leyfðum honum að sofa í búri frá hundinum mínum. Í dag að þá löbbuðum við í hús í nágrenninu til að tjékka hvort að einvher ætti hann en enginn sagðist eiga hann eða kannast eithvað við hann. Við ákváðum að fara með hann í dýraathvarfið og athuga hvort að þau gætu tekið við honum eða allavega tjékkað á því hvort að hann sé örmerktur og þá hægt að finna eigandann. Sem betur fer að þá er hann örmerktur og eigendurnir fundnir, en því miður að þá svara þeir ekki símanum og dýraathvarfið getur ekki tekið við honum því að það er í rauninni ekki dýrathvarf heldur dýraættleiðingastofa og þau hafa ekki nógu mikið pláss þannig að við verðum að geyma hundinn þangað til að eigendurnir hafa samband. Þannig að við skildum eftir símanúmerið okkar þannig að þau gætu haft samband við okkur ef að eigendurnir vildu fá hundinn sinn aftur. Þannig að núna er ég með 2 hunda á heimilinu og þar sem að Sally, hundurinn sem að ég er búin að hafa allt árið, er frekar illa við aðra hunda að þá er það aðeins erfiðara að vera með 2 hunda heldur en að ég hélt. það þarf að passa það að Sally sé ekki nálægt þegar að hinum hundinum er hleypt út til að pissa og svoleiðis, en þetta á allt eftir að leysast þar sem að ef að eigendurnir skila sér ekki að þá þurfum við að setja hann í athvarfið :(. en á meðan að þá á ég 2 hunda :P
| Sundliðið mitt :) (vantar nokkra) |
![]() |
| kveðja Þjálfarann minn :( |
| krakkarnir sem voru með mér i sögu :) |
| á hlekkjóttustu götunni í San Francisco |
| San Francisco |
| töff vatnstankur á Alcatraz |
| Golden gate brúin |
| Golden gate brúin |
| Hipparúta í San Francisco |
| Hippa búð :P |

No comments:
Post a Comment