Tuesday, September 25, 2012

langt síðan síðast

Fyrst af öllu þá vil ég biðjast afsökunar á því hvað það er langt síðan að ég bloggaði síðast það hefur bara verið svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma til þess að blogga. En allavega þá byrjuðu sundæfingarnar í síðustu viku og voru fyrstu 2 dagarnir bara þrek og ekkert sund og ekki bara það að þá var ég með hálsbólgu og kvef (alltaf er ég jafn heppin). Þannig að alla síðustu viku þá gekk ég um eins og spítukall og hóstandi. Þrek æfingarnar voru sem sagt á mánudag og þriðjudag og svo var sund á miðvikudag og fimmtudag en frí á föstudag :). Æfingarnar eru mjög léttar akkúrat núna af því að sumir í liðinu eru enþá að læra að synda þannig að það þarf alltaf smá tíma fyrir þau að læra.  Í þessari viku erum við að læra öll "strokin" þ.e.a.s flug, bak og bringu. Og laugardaginn 8. okt þá er fyrsta sundmótið mitt og er ég úber spent fyrir því.

Í þessari viku er homecoming :) ég er ekki með date eins og Fem sem að var spurð í dag á geðveikt krúttlegan hátt. Allavega að þá eru allir dagar í þessari viku þemadagar og í gær var hippaþema, í dag var 20's þema ( sem að eiginlega enginn tók þátt í því að ekki eiga margir 20's föt haha), á morgun er svo besti dagurinn 80's (því miður skildi ég öll 80's outfittin mín eftir heima á Íslandi ), á fimmtudagin er 50's þema og svo á föstudaginn er appelsínugulaðu þig upp (orange out) :). Um síðustu helgi fór ég með Elise til Austin að hitta Willie og Tommy og bróðir hennar. það var ekkert smá fjör, labbaði aðeins um downtown dallas, skoðaði mig um í Texas capitol sem er ekkert smá falleg bygging, borðaði Ribs (í fysta skiptið ). 

Lærdómur á ensku er enþá frekar erfiður en þetta verður aðeins auðveldara því lengra sem líður á dvölina :). Þegar að ég var að skrifa niður dagsetninguna í dag í skólanum þá tók ég eftir því að ég er næstum því búin að vera hérna í 2 mánuði :O. Vá hvað tíminn líðut hratt mér finst enþá eins og ég hafi kvatt ykkur öll í gær. Áður en ég veit af verð ég komin aftur heim haha.  
Í vikunni komst ég að því að það er annar skiptinemi frá Danmörku í skólanum sem er nýkominn og er Elise trúnaðarmaður hans og mun hann mjög líklega eyða jólunum með okkur sem verður bara mjög mikið fjör. 

Ég mun mjög líklega ferðast meira um Texas á næstu mánuðum því að Elise vill sýna mér alla skemmtilegu staðina :). Þann 13. oktober erum við búin að plana að fara með Afs í countrydans og spái ég því að það verði ekkert smá mikið fjör :) og ekki bara það að það sé skemmtilegt að dansa að þá er þetta líka afmælisdagurinn hennar Elise :).

endilega skiljið eftir ykkur komment annars finst mér eins og að ég sé að skrifa bara fyrir mig ;P

Ekki meira í bili hérna handan við hafið

-Sunneva


Monday, September 10, 2012

mánuður liðinn :)

jæja þá er ég búin að vera hérna í heilan mánuð :O mér finst enþá eins og ég hafi lent hérna í bandaríkjunum í gær. En allavega að þá er vikan mín búin að vera bara ósköp venjuleg skólinn byrjaður á fullu og er aðeins erfiðara að læra á ensku en ég hélt en ég er að ná tökunum á því :).
Tryouts fyrir sundliðið voru í síðustu viku og komst ég inn í varsity liðið sem þýðir að ég verð meira að keppa og svoleiðis :). Tryouts var frekar skrítið ég var ekkert smá stressuð búin að vera að hlusta á tímana hjá öllum og fékk alveg sjokk afþví að tímarnir þeirra voru svo góðir, þegar að við byrjuðum loksins að synda þá var þetta bara eins og skólasund í 8. bekk, syndiði 4 ferðir skriðsund og hvíla í 10 sek á milli. Þegar tryouts var búið fattaði ég að ástæðan fyrir því að tímarnir hjá öllum voru svona góðir er af því að laugin er 25 yards en ekki metrar sem þýðir að sundlaugin er í kringum 20m ekki 25 :).
Á föstudaginn fór ég á minn fyrsta ameríska fótboltaleik :) þessi leikur er alveg óskiljanlegur og skrítinn en þetta var samt alveg eins og í bíómyndunum þegar að klappstýrurnar eru í kring og allt það var geðveik upplifun að fara loksins á leik :).
Á laugardaginn var fyrsta ballið í skólanum (luau) hawaii þema og var ég búin að hlakka ekkert smá til að fara loksins á amerískt ball en komst síðan að því að böll í high school eru víst eins og grunnskólaböll þar sem allir annahvort sitja og gera ekki neitt eða hoppa eins og fávitar :) en það var samt mjög skemmtilegt að fara.
Á sunnudaginn fór ég með Issie (skiptineminn frá þýskalandi) og Fem (skiptineminn frá hollandi) að spila blak með öðrum skiptinemum og var það ekkert smá mikið fjör. Þegar að ég kom aftur þá fór ég með Elise á softball leikinn hennar sem var búið að fresta 2x vegna rigningu. Ég var ekkert smá spent að fá að sjá loksins hvernig þessi leikur virkar og komst svo að því að softball er bara mjög líkt kíló :). Elise vann báða leikina sína og var því liðið hennar champions. Á meðan að hún var að spila var ég að passa lítinn strák sem ein konan í liðinu átti og var hann ekkert smá mikið krútt aðeins 5 mánaða gamall :).
Homecoming er eftir 3 vikur og hlakka ég ekkert smá mikið til að fara á það :) spurningin er bara hvort að ég mun hafa date eða ekki haha :)
ekki meira í bili
-Sunneva

Monday, September 3, 2012

fyrsta vikan í high school

jæja þá er loksins komið að því ég er byrjuð í high school :) Fyrsta vikan búin og var hún frábær. Draumurinn minn er samt ekki enþá alveg fullkominn því að ég er því miður ekki enþá komin með skáp :( haha en það kemur á endanum vonandi:)Allavega að þá hefur fyrsta vikan verið skemmtileg blanda af erfiðleika, skemmtun og vandamálum. Fyrsti dagurinn byrjaði ekki neitt svakalega vel, ég átti að finna nafnið mitt á einhverjum lista til að finna hvert ég átti að fara í fyrsta tíma og fá stundatöfluna mína. Þegar að ég kom í skólann og fann þennan lista þá var ég ekki á honum :( þá átti ég að fara í matsalinn og fara í einhverja röð til að fá stundatöfluna mína, ég beið í þessari röð í klukkutíma og var síðan send til námsráðgjafans til að fá stundtöfluna mína. Þegar að ég var komin þangað þá komst ég að því að stundataflan mín var ekki inni í kerfinu þannig að ég þurfti að velja öll fögin mín aftur og valdi sum af þeim vitlaust því að ég fór í AP computer sciense sem var alltof erfitt og færði ég mig úr því í venulegt :) síðan fékk ég loksins stundatöfluna mína og gat byrjað skóladaginn minn :) síðan kom hádegismaturinn, ég þekkti ekki neinn en ég vissi að annar skiptineminn var með mér í hádegismat og ég reyndi að finna hana en fann hana hvergi og ég stóð í mötuneitinu í ca 10 mínotur labbandi útum allt eins og fáviti að reyna að finna hana þangað til að ein stelpa sem var með mér í tíma kom til mín og bauð mér að sitja hjá sér og var ég mjög ánægð með það. Restin af deginum gekk mjög vel þangað til að síðasti tíminn minn kom. síðasti tíminn minn er dans en það var víst einhver misskilningur og þessi danstími átti að vera lokaður danstími en það voru í kringum 70 krakkar og allt blandað frá vönum dönsurum og alveg nýjum eins og mér. ég held að bara ég gæti lent í svona miklum vandræðum á einum degi haha. Restin af vikuni gekk bara mjög vel :) ég fékk mjög margar skrítnar og fáránlegar spurningar um ísland eins og notiði hundasleða og hvað borðiði og hvort íslenska væri tungumál en sú algengasta er hvort að ísland sé kalt eða hvort ísland sé grænt og grænland er ís haha. ég er í sundliðinu en þarf samt að fara í tryouts sem eru á morgun og fáiði að heira meira um það næst.ekki meira í bili-Sunneva