langt síðan síðast
Fyrst af öllu þá vil ég biðjast afsökunar á því hvað það er langt síðan að ég bloggaði síðast það hefur bara verið svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma til þess að blogga. En allavega þá byrjuðu sundæfingarnar í síðustu viku og voru fyrstu 2 dagarnir bara þrek og ekkert sund og ekki bara það að þá var ég með hálsbólgu og kvef (alltaf er ég jafn heppin). Þannig að alla síðustu viku þá gekk ég um eins og spítukall og hóstandi. Þrek æfingarnar voru sem sagt á mánudag og þriðjudag og svo var sund á miðvikudag og fimmtudag en frí á föstudag :). Æfingarnar eru mjög léttar akkúrat núna af því að sumir í liðinu eru enþá að læra að synda þannig að það þarf alltaf smá tíma fyrir þau að læra. Í þessari viku erum við að læra öll "strokin" þ.e.a.s flug, bak og bringu. Og laugardaginn 8. okt þá er fyrsta sundmótið mitt og er ég úber spent fyrir því.
Í þessari viku er homecoming :) ég er ekki með date eins og Fem sem að var spurð í dag á geðveikt krúttlegan hátt. Allavega að þá eru allir dagar í þessari viku þemadagar og í gær var hippaþema, í dag var 20's þema ( sem að eiginlega enginn tók þátt í því að ekki eiga margir 20's föt haha), á morgun er svo besti dagurinn 80's (því miður skildi ég öll 80's outfittin mín eftir heima á Íslandi ), á fimmtudagin er 50's þema og svo á föstudaginn er appelsínugulaðu þig upp (orange out) :). Um síðustu helgi fór ég með Elise til Austin að hitta Willie og Tommy og bróðir hennar. það var ekkert smá fjör, labbaði aðeins um downtown dallas, skoðaði mig um í Texas capitol sem er ekkert smá falleg bygging, borðaði Ribs (í fysta skiptið ).
Lærdómur á ensku er enþá frekar erfiður en þetta verður aðeins auðveldara því lengra sem líður á dvölina :). Þegar að ég var að skrifa niður dagsetninguna í dag í skólanum þá tók ég eftir því að ég er næstum því búin að vera hérna í 2 mánuði :O. Vá hvað tíminn líðut hratt mér finst enþá eins og ég hafi kvatt ykkur öll í gær. Áður en ég veit af verð ég komin aftur heim haha.
Í vikunni komst ég að því að það er annar skiptinemi frá Danmörku í skólanum sem er nýkominn og er Elise trúnaðarmaður hans og mun hann mjög líklega eyða jólunum með okkur sem verður bara mjög mikið fjör.
Ég mun mjög líklega ferðast meira um Texas á næstu mánuðum því að Elise vill sýna mér alla skemmtilegu staðina :). Þann 13. oktober erum við búin að plana að fara með Afs í countrydans og spái ég því að það verði ekkert smá mikið fjör :) og ekki bara það að það sé skemmtilegt að dansa að þá er þetta líka afmælisdagurinn hennar Elise :).
endilega skiljið eftir ykkur komment annars finst mér eins og að ég sé að skrifa bara fyrir mig ;P
Ekki meira í bili hérna handan við hafið
-Sunneva
Það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt og ég er viss um að margir eru að lesa það. Pakkinn þinn fór af stað í fyrradag og vonandi verður hann fljótur á leiðinni. Kveðja mamma
ReplyDeleteGaman að lesa bloggið þitt og fylgjast með þér :) Haltu áfram að njóta og hlakka til að fá að heyra meira :)
ReplyDelete- Hafrún