mavricks leikur, kveðjustund, heimsókn frá pabba og fleira
Jæja ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á því hvað það er langt síðan að ég bloggaði síðast það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég hef ekki haft tíma til að setjast niður og blogga.....Allavega að þá er ég búin að vera hérna í 8 og hálfan mánuð....það er ekkert smá sem að tíminn líður......ég að vera ég að þá er ég auðvitað búin að reikna út hvað það eru margir dagar þangað til að ég kem heim á klakann......en ég tel ekki niður ég reikna það bara stundum út og í dag eru 60 dagar þangað til að haldið verður aftur heim. En allavega að þá ætla ég að fjalla um þá hluti sem að eru búnir að vera að gerast hjá mér að undanförnu.....
Mavricks leikur
Í lok mars að þá fékk ég 2 frídaga (28, 29 mars) það er í rauninni páskafríið mitt því að þetta var helgina fyrir páska, en í alvörunni að þá eru þessir dagar kallaðir inclement weather days (í bandaríkjunum færðu víst 2 frídaga á ári vegna veðurs og ef að þeir eru ekki nýttir yfir árið að þá fær skólinn að velja daga til að nýta þetta frí) og á þessum fimmtudegi (28.mars) þá fór ég á NBA körfubolta leik sem að var bara mjög gaman. Vorum ca 20 krakkar frá AFS á þessum leik.....íþróttahöllin sem að leikurinn var í var ekkert smá flott.....en stemningin ekki sú sama og á úrslitaleikjum Grindavíkur í körfubolta ....... haha. Á þessum leik voru Dallas Mavericks og Indiana pacers að keppa og því miður að þá tapaði Maveriks en það er allt í lagi það var samt ekkert smá gaman á þessum leik :).
kveðjustund
Því miður að þá þurfti ég að kveðja þýska skiptinemann Izzy sem að ákvað að fara heim snemma út af fjölskyldumálum :(. Það var mjög erfitt að segja bless við hana þar sem að hún er búin að vera hluti af þessari frábæru reynslu minni hérna úti og svo allt í einu var hún bara farin heim :( En sem betur fer gerir internetið það auðveldara að halda í sambandi við fólk og þótt að hún sé ekki lengur hérna að þá get ég samt talað við hana reglulega :)
Mynd af mér á vegg skólans
Ég var einhverntíman áður búin að nefna það að það var tekin mynd af mér til að hengja upp á gang í skólanum sem að er kallaður hall of hornes og eru myndir þar af krökkum í skólanum sem að hafa unnið til einhverja verðlauna í íþróttum þetta skólaár, og er myndin mín þarna uppi því að ég var í boðsundssveitinni sem að lenti í 3. sæti á District sundmótinu :). myndir koma fljótlega á facebook :)
Heimsókn frá pabba
Eftir að hafa verið frá mömmu og pabba í 8 og hálfan mánuð að þá fékk ég heimsókn frá pabba í nokkra daga :) Það var alveg æðislegt. Ég fór og sótti hann á flugvöllinn á föstudagsmorguninn og við fórum niður í bæ og borðuðum hádegismat með Elise (mömmu minni) og fórum síðan á the Perot safnið sem að er vísindasafn og er ekkert smá flott. Um kvöldið komu Fem og fjölskyldan hennar í heimsókn og borðuðu kvöldmat með okkur. Á laugardeginum þá fór ég með Pabba og Elise að skoða Cowboy Stadium (völlurinn þar sem Dallas Cowboys spila amerískan fótbolta á) , við fórum í VIP tour og var það ekkert smá flott, fengum að fara í búningsklefa klappstýranna og leikmannana og var það ekkert smá töff. Ég og pabbi fórum meira að segja í búninga sem voru þar inni og vorum að þykjast spila amerískan fótbolta og var það ekkert smá gaman. Þegar að við komum heim bauð ég Martin (skiptineminn frá Danmörku) og Nadju eða Nacho eins og við köllum hana (skiptineminn frá þýskalandi) í kvöldmat til að hitta pabba. Á sunnudeginum fórum við á hafnaboltaleik. Leikurinn byrjaði klukkan 2 og var ekki búinn fyrr en klukkan hálf 6 en það var samt ekkert smá gaman. snillingurinn ég ákvað að bera á mig sólarvörn þar sem að ég vissi að ég myndi vera úti í sólinni allan daginn.....en ég bar bara á hendurnar af því að ég var með derhúfu og gerði bara ráð fyrir því að ég myndi ekki brenna á hálsinum......en rauðhærðu genin mín tóku yfir og skaðbrenndist ég á hálsinum og fanst mér það frekar fyndið þar sem að ég vissi að ég bar ekki á mig sólarvörn þar. Við unnum leikinn 11-3 eða 6 man ekki alveg hvort það var haha. Á mánudagsmorgun þurfti ég að kveðja pabba aftur :( eftir að pabbi var farinn leit ég á herbergið mitt og var það frekar tómlegt þar sem að ég bað pabba um að taka slatta af dótinu mínu heim þannig að ég myndi ekki vera með yfirvigt :).
lítið að gera í skólanum
Þessa síðastliðna viku hefur verið TAKS próf fyrir junior nema en þar sem að ég er skiptinemi þá þarf ég ekki að taka þessi próf og þau taka allan daginn, og þar sem að ég flokkast sem junior hérna úti að þá eru flest fögin mín junior fög. En því að kennslustjórinn vildi ekki leyfa litlu skiptinemunum að vera heima þessa daga að þá þurfti ég að fara í skólann til að gera nákvæmlega ekki neitt og leiddist mér ekkert smá mikið......en ekkert sem að ég get gert í því þannig að ég fann mér bara eithvað að gera....endaði meira að segja á því að spurja vin minn hvort að ég mætti fá stærðfræðilærdóminn hans til að gera í sögutíma því að ég hafði ekkert að gera og auðvitað leyfði hann mér það þar sem að hann hatar stærðfræði á meðan að mér finst hún frekar skemmtileg :).
Dance Explotion og prom
Í næstu viku verður ekkert smá mikið að gera hjá mér........á mánudag og þriðjudag verð ég í skólanum til í kringum hálf 8 á dansæfingum.....á fimmtudag og föstudag er ég að dansa á danssýningu í skólanum sem að heitir Dance explotion.....og þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur ég kem heim með myndband af danssýningunni þannig að þið getið fengið að sjá dansinn minn :P......og á laugardaginn eftir er PROM :) því miður að þá er ég ekki með neitt date en það er allt í lagi því að enginn af skiptinemunum er með date og ætlum við öll bara að fara saman, þótt að það eigi mjög líklega eftir að enda á að vera bara ég og Fem því að Nacho og Martin eru ekki jafn áhugasöm á prom og ég og Fem....þótt að hún sé búin að fara á Prom í Hollandi en það er ekki það sama, þannig að á morgun að þá erum við að fara í Prom kjóla verslunarleiðangur sem verður vonandi bara gaman.
þetta blogg var aðeins lengra en ætlað var :)
Myndir koma fljótlega á facebook :)
ekki meira í bili
-Sunneva
No comments:
Post a Comment