Friday, December 7, 2012

tanksgiving

Komiði nú sæl og blessuð, ég veit að ég er ekki beint búin að vera dugleg að blogga að undanförnu en það er hreinlega bara afþví að það er ekkert mikið búið að vera að gerast og ég hef ekki haft neitt svakalega mikið til að blogga um. 


En allavega að þá var thanksgiving í lok nóvember eins og flest allir vita og var það bara mjög skemmtileg upplifun. Ég þurfti að fara í skólann á mánudeginum og þriðjudeginum og svo fékk ég frí restina af vikuni og voru flest allir mjög pirraðir því að vanalega er öll vikan frí nema í ár :(. Allir strákarnir og svo Rosie komu heim til þess að borða þakkargjörðarkvöldmat með fjölskyldunni og var það mjög gaman þar sem að ég var ekki búin að sjá þá í langan tíma :). Við skemmtum okkur konunglega og fórum út að spila kassa (aðeins meiri advanced en samt basicly sami leikur og við spiluðum úti í frímínótum í grunnskóla). Á þakkargjörðardagsmorgun fór ég með systkinum mínum niður í bæ og tókum við þátt í hlaupi sem kallast the turkey trot og er það 8 mílur. Ég ákvað að vera snillingur og taka ipodinn minn með og mæla hversu mikið það væri í km og kom í ljós að ég hljóp í kringum 18km undir 2 tímum :). Þetta hlaup var mjög skemmtilegt en eftirá þar sem að ég er ekkert búin að vera að hlaupa neitt síðan að ég kom hingað að þá voru lappirnar mínar alveg dauðar eftir á sérstaklega þar sem að kvöldið áður þá fór ég og gerði þrek með Jamie og vorum við að gera mjög mikið af hnébeygjum þar. Þegar við komum heim var bara svona afslappandi dagur eins og á gamlárs þar sem að kalkúnn var í ofninum. En þegar að kom að matnum þá hélt ég að ég væri að fara að fá kalkún en fékk víst týpíska Texas þakkargjörðarmáltíð, turducken (kjútlingur inni í önd sem er inni í kalkúni) já þetta er í alvöru ekki djók :). Eftir matinn fórum við í bíó á einvherja mynd sem að ég man ekki hvað heitir en hún var mjög skemmtileg. Á leiðinnni heim var klukkan orðin 12 og búðirnar að opna á black friday!!. Við sáum biðraðirnar og öll bílastæði full og allt og vorum ánægð að við værum búin með öll jólainnkaup. Skiptineminn frá Þýskalandi spurði mig hvort ég vildi koma með henni að versla á black friday en ég ákvað að gera það ekki þar sem að ég gat varla labbað útaf harðsperrum og var mjög þreytt og búin að kaupa allar jólagjafirnar. Á laugardeginum pakkaði ég inn öllum jólagjöfunum sem ég var að fara að senda heim og setti þær í kassa til að senda til íslands.


Vikan eftir thanksgiving var bara mjög venjuleg vika ekki neitt svakalega mikið að gerast þar. Einn dag vikunar bað sögukennarinn mig um að koma í 2 tíma hjá henni til að tala um Ísland og íslensku og hversu mikið er öðruvísi hér og á íslandi og eithvað því að í Human geography (veit ekki íslenska orðið fyrir þennan tíma ) tímunum hennar var hún að tala um tungumál og töluðu þau um íslensku og eithvað svoleiðis. Allavega að þá gerði ég það fyrir hana og var hún mjög ánægð með það og í báðum tímunum voru einvherjir krakkar úr sundliðinu þannig að ég þekkti nokkra krakka þarna og voru þau að spurja mig fullt af spurningum um tungumálið og hvernig við berum fram einvher orð og eithvað svoleiðis. Ég ssagði þeim frá eyjafjallajökull og hvernig mikið af þessum hljómum eiga þau erfitt með að bera fram og svo reyndi ég að kenna þeim að segja stóll því að þau ná ekki ll hljóðinu og var það mjög skemmtilegt. Eftir þetta þá er það fyrsta sem að Stuart (strákur í sundliðinu mínu) segir við mig þegar að hann hittir mig orðið stóll því að hann vill ná að bera það fram rétt og á endanum þá náði hann því :).


Í síðustu viku var sundmót, frekar stórt sundmót þar sem að það voru 5 skólar en ekki bara við og einvher 1 annar. Ástæðan fyrir því er sú að við áttum að hafa annað mót vikuna fyrr en því var frestað og bætt öðrum skólum við sem að við áttum að keppa við vikuna seinna og eithvað lið sem átti að keppa við hinn skólan á þessum degi og eithvað. En allavega að þá var ég að keppa í 200yards fjórsunds boðsundinu (flugsund auðvitað) og bættum við tímann okkar um 4 sekondur :), 100 yard flugsund þar sem að ég bætti tímann minn niður í 1.08.61 sem að jafngildir í kringum 1.14 eða 1.15 í metrum sem að er besti tíminn minn hingað til og er ég mjög stolt af sjálfri mér :), síðan keppti ég líka í 200yard skriðsundi en það var ekki neitt svakalega vel gert hjá mér :/. Stelpurnar lentu í 1. sæti á þessu móti og strákarnir í 3.. Í næstu viku er City meet sem að er svakalega stórt mót þar sem að allir skólarnir í dallas eru að fara að keppa á því og við erum mjög vel sett fyrir það mót þar sem að allir eru búnir að vera segja við þjálfaran að hún sé með mjög sterkt lið í ár :). 


Ég er búin að fá allar sendingar sem að ég er búin að búast við með pökkum og er mjög erfitt að  horfa á afmælisgjafirnar mínar og meiga ekki opna þær þar sem að afmælið mitt er ekki fyrr en að eftir 9 daga :(. En ég næ samt að harka það af mér því að það er ekkert gaman að opna gjafirnar sínar fyrir afmælisdaginn :). Pakkinn frá mömmu og pabba var æðislegur þar sem að í honum var jóla og afmælisgjafir ásamt slatta af íslensku nammi sem að ég er búin að sakna svo mikið :) og var það einmitt það sem að ég þurfti :). Ég fór með smá af hverri tegund í skólann til að gefa vinum mínum og allir elska möndlur en krakkarnir í sundliðinu eru ekki neitt svakalega mikið fyrir lakkrís þannig að þeim líkaði ekki við íslenska saltlakkrísinn (alltof salltaður), kúlusúkk né bingó kúlur :O sem að ég skil alls ekki hvernig er hægt því að bingókúlur er eitt af því besta nammi sem að ísland framleiðir en þau eru bara ekki vön því :).


Vó ég er búin að vera hérna í 4 mánuði, tíminn líður ekkert smá hratt. Dvölin næstumþví hálnuð :O áður en ég veit af því verð í flugvélinni á leiðinni heim :) :/. 


nóg í bili
-Sunneva 


No comments:

Post a Comment