skráning í skólann og Ródeó
Jæja, ég er búin að vera hérna í 2 og hálfa viku og mér finst eins og ég hafi komið hingað í gær :). Allavega þá skráði ég mig í skólann á þriðjudaginn og tók það ekkert smá langan tíma. Ég og Elise komum þarna um hálf 10 og þurftum að fylla út einhverja pappíra og fara svo í röðina. Röðin var endalaus, við biðum í henni í ca 1 og hálfan klukkutíma þangað til að við fengum loksins að komast inn á skrifstofuna þar sem að þau tjékka hvort þú sért búin að fylla allt út sem á að fylla út. Á meðan við vorum þar inni að þá fór rafmagnið af í skólanum og allt gekk miklu hægar af því að þau gátu ekki gert ljósrit af öllu, en sem betur fer að þá var Elise svo sniðug að hún ljósritaði allt þannig að við vorum með afrit af öllu og gekk allt því hraðar fyrir okkur, eftir að það var búið þurftum við að fara til hjúkkunar og þar var önnur röð, sem betur fer ekki jafn löng og hin þessi var bara 10 min, hjúkkan tjékkaði hvort ég væri búin að fara í allar sprauturnar sem ég þurfti og hvort að þetta væru "up to date" upplýsingar. þegar við vorum búnar hjá hjúkkuni fórum við í aðra 10 mínotu biðröð á skrifstofuna til að þau geti tryggt það að hjúkkan sé búin að samþykkja. Þegar ég var búin þar þá fór ég til Conselor office að velja fögin mín, en útaf því að það var allt rafmagnslaust að þá gat enginn gert neitt og það var allavega hálftíma bið þannig að við ákváðum að fara heim og koma aftur eftir hádegi. Eftir hádegi kom ég aftur og þá gekk allt miklu hraðar ég þurfti bara að bíða í 5 minotur til að komast til námsráðgjafans og segja henni hvaða fög ég vildi fara í. Ég er að fara að taka ensku, algebru, líffræði (ég fæ að kryfja kött :)), ameríska sögu, sund, tölvu vísindi, spænsku og svo ákvað ég að fylgja í spor bróður míns og taka dans (vantaði eithvað listarfag ).
Rodeo!!!!!!!
Í gær fór ég á mitt fyrsta ródeó. Það var ekkert smá gaman og spennandi. Ég vorkenndi kálfunum samt smá því að þeir voru að binda þá fasta og kipptu fast í bandið utanum hálsin til að stoppa þá og kálfarnir hentust til baka :(. Fyrst áður en Ródeóið byrjaði þá kom kona ríðandi inn á hesti með ameríska fánan, öll ljós slökkt og ljóskastari á hana og farið var með þjóðsönginn, svakalega amerískt en samt ekkert smá töff. þegar það var verið að kynna keppendurna þá voru flugeldar og það var ekkert smá töff. Í hlénu þá voru stelpur sem gerðu nokkurskonar fimleika á hestunum og var það geðveikt töff !! Þessi upplifun er ein af þeim skemmtilegustu sem ég hef upplifað síðan ég kom hingað en það mun örugglega breytast fljótt þar sem skólinn byrjar á morgun :) og blogga ég um það bráðlega. Ég tók nokkur myndbönd og fullt af myndum sem fara á fésið bráðlega :)Ekki meira í bili -Sunneva
No comments:
Post a Comment