Thursday, August 9, 2012
ferðablogg
Jjæja þá er maður víst lagður af stað til bandaríkjanna. Ferðin gekk misvel, ég var að ferðast með stelpu sem heitir Þóra og vorum við búnar að ákveða að hittast uppi á flugvelli klukkan 8 því að flugið okkar var klukkan 10:30. Þegar við vorum búnar að tjékka okkur inn þurfti að borga smá yfirvigt fyrir töskurnar því að þau úti leyfa okkur ekki að vera með 2 töskur. Þegar það var búið þurftum við að fara að kveðja mömmu og pabba. Þegar við komum í fríhöfnina skoðuðum við smá og fórum síðan og fengum okkur að borða niðri hjá saga class því að við vorum víst með einhverja comfort miða eða eithvað og vorum á milli saga class og venjulegu. Allavega flugið til Boston gekk bara mjög vel og var mjög fljótt að líða. Þegar við lentum í Boston þurftum við að filla eithvað út sem við vissum ekki að við þurftum að fylla út og fólkið á flugvellinum vildu ekki hjálpa okkur því að við áttum að tala við einhvern sem var að representa icelandair. Á endanum þá kom einhver að hjálpa okkur og alllt gekk miklu betur. Þegar að við vorum búnar að sækja töskurnar okkar þurftum við að connecta þær við næsta flug og við gerðum það og fórum síðan í terminal B sem var hinum megin á flugvellinum og tókum einhverja rútu þangað. Þegar þangað var komið vorum við búnar að gleyma hvert við áttum að fara og þurftum að spyrja til vegar, Þar var spurt okkur með hvaða flugfélagi við vorum að fara að fljúga en við mundum það ekki en föttuðum síðan að við vorum með miðann og þá reddaðist allt. Loksins eftir langa bið vorum við komnar í fríhönina í Boston og fengum okkur þar að borða á Mc Donalds og þurftum síðan að bíða þar í 2 og hálfan tíma. Þegar þessi bið var búin fórum við um borð í flugvél sem var verri heldur en iceland express flugvélarnar það var svo þröngt :(. Það flug var bara í klukkutíma því að við millilentum í fíladelfíu og þurftum að fara frá borði og bíða í klukkutíma til að fara til Houston. Þegar við vorum að bíða þar þá hittum við skiptinema sem var að fara heim og hann öfundaði okkur ekkert smá við að vera að byjra þessa ferð og spjölluðum við við hann í smá stund þangað til að við fórum um borð í flgvélinni. Þá tók við 4 tíma flug til Houston og vorum við orðnar frekar þreyttar þá enda klukkan orðin hálf 11 á íslenskum tíma og við búnar að vera vakandi síðan klukkan 6. Í því flugi flugum við framhjá eldingarskýjum og voru eldingarnar bara við hliðina á okkur, það var mjög flott og spennandi að sjá það. Þegar að við lentum síðan loksins í Houston var sjálfboðaliði frá AFS sem að tók á móti okkur og hittum við aðra skiptinema frá spáni og suður afríku. Þegar við vorum búnar að ná í farangurinn þurftum við að bíða eftir einhverri rútu sem að tæki okkur á hótelið sem við gistum á í nótt. Á þessum klukkutíma sem við vorum að bíða eftir rútuni þá vorum við í frekar miklum svefngalsa og hlógum geðveikt mikið og voru örugglega margir að spá í hvað væri í gangi með okkur. Þegar að við komum á hótelið þá kom það í ljós að Þóra var ekki í sama herbergi og ég af því að hún þarf að fara með flugi klukkan 8 og var því vakin klukkan 4:30 en ég fer ekki fyrr en klukkan 17:00 þannig að ég fékk að sofa þangað til hálf 7. núna sit ég á hótelinu með öðrum skiptinemum sem eru að fara til Dallas og fer ekki fyrr en um 5 og þá fer ég í 5-6 tíma rútuferðalag og síðan á annað hótel og á föstudaginn fæ ég að hitta fjölskylduna mína :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Skemmtilegt ferðalag. Gott að þið voruð tvær. Ég hlakka til að fylgjast með þér og góða skemmtun. Kveðja mamma
ReplyDeleteGaman að lesa bloggið þitt og fylgjast með. Verður örugglega mjög gaman og spennandi dvöl!
ReplyDeleteÉg er núna búin að vera í mánuð í Malasíu og þetta er bara æði :D
Getur verið mjög ánægð að þið voruð 2, ég ferðaðist allt mitt ferðalag alein og það var ekkert rosalega skemmtilegt :/
En góða skemmtun :D