þrumuveður, verslunarferð,miðnæturhlaup róðrarferð og sólbruni
Þá er ég búin að vera hérna í meira en viku :O vá hvað tíminn líður hratt, áður en ég veit af því verð ég komin heim haha. Allavega þá upplifði ég loksins ameríska rigningu á þriðjudaginn sem fer beint niður og var það mjög töff. Það var svakalegur þrumustormur og við ákváðum að eyða kvöldinu inni og fórum í bío :) en þegar myndin var hálfnuð þá heyrðum við allt í einu svakalega þrumu og hljóðið fór af myndinni, eldinginn hitti í einhvern hluta byggingarinnar en það lagaðist allt eftir smá tíma. Miðvikudagsmorgun var Fem (skiptinemin frá Hollandi sem býr í götunni og fer í sama skóla og ég) ekki með neitt rafmagn því að um nóttina fór elding í rafmagnskassann þeirra en rafmagnið kom aftur á eftir smá tíma.Á miðvikudaginn þurfti ég að kveðja Jamie (einn af hóst bræðrum mínum) því að hann var að fara í college í Missori :(. Eftir hádegi skutlaði Marie ( host mamma Fem) mér og Fem í mollið og versluðum við soldið mikið af fötum þar, Fem verslaði fyrir yfir 150 dollara en ég eithvað í kringum 100 :/. Á miðvikudagskvöldið fórum við á fótboltaleik hjá vini Willie (hóst bróðir minn) og var það bara mjög gaman. Á fimmtudeginum gerði ég voða lítið fyrri part dags, um 1 leitið fór ég og Fem með Isobel (hinn skiptineminn frá Þýskalandi sem verður með mér í skóla) að versla smá (ég og Fem versluðum ekki neitt því að við versluðum svo mikið á miðvikudaginn ), eftir verslunarferðina bauð Isobel okkur heim í mat og borðuðum við kvöldmat þar. Ég og Fem komum heim um hálf 11 og ætluðum að chilla smá heima og fara svo að sofa en þá bauð willie okkur að koma með sér út að hlaupa, við ákváðum að skella á það og hlupum í klukkutíma. það var gaman, svolítið erfitt útaf hitanum en samt bara fínt að fá loksins einhverja hreyfingu eftir að hafa verið í viku í Bandaríkjunum. Þegar við komum heim eftir hlaupið var MJÖG heitt inni í húsinu því að loftræstingin var ekki að virka. Núna í morgun fórum við kanooing (man ekki alveg íslensku þýðinguna á því en ég held það sé róður). Við lögðum af stað um hálf 10 um morguninn og keyrðum í ca klukkutima því að strákarnir ætluðu aldrey að finna staðinn. Þegar við loksins fundum staðinn þá fórum við út í vatnið og skemmtum okkur konungslega. Þegar að ég kom heim þá tóku strákarnir eftir því að ég var sólbrennd á bakinu og ekkert lítið (ég bar samt á mig sólavörn um morguninn). Afþví að strákarnir voru búnir að vera svo góðir við mig og Fem þá ákváðum við að gera handa þeim eldbakaðar brauðsneiðar sem Fem kunni að gera og smökkuðust þær mjög vel. Síðan ákváðum við að baka smákökur aftur og hepnaðist það miklu betur núna heldur en í hitt skiptið :). Um kvöldið fórum við í sundlaugina á eithvað sem kallast Burger fry og er alla föstudaga, það er þannig að það er grillað í sundlauginni og allir hafa svaka gaman, en það endaði snemma því að það var að koma þrumuveður og lifeguardinn sá eldingu og þá má enginn vera lengur í sundlauginni :(. Allavega að þá er þrumuveður núna og ég sit inni með öllum og hef það kósí :)ekki meira í bili (ætla að reyna að setja myndir inn þegar þær eru orðnar fleiri )Sunneva
No comments:
Post a Comment