homecoming og fyrsta sundmótið
jæja þá er loksins komið að því að ég er búin að upplifa mitt fyrsta homecoming :). Sá dagur var fullbókaður. Ég vaknaði snemma um morguninn til að fara á fysta AFS námskeiðið :) það var alveg nett mikið fjör. námskeiðið átti að vera til 4 en af því að það var homecoming hjá mér að þá fengum við skiptinemarnir úr white að fara fyrr (white er stytting á W.T.White high school) svo við fengum tíma til að gera okkur klár. Við fengum nú samt ekki mikinn tíma því að við fengum bara að fara hálftíma fyrr eða um 15:30. Klukkan hálf 6 ætluðum við að taka myndir heima hjá einhverjum vinum fjölskyldu Issie (skiptineminn frá þýskalandi) þannig að við höfðum 2 tíma til að koma okkur heim, fara í sturtu, mála okkur og gera hárið okkar fínt. Það reyndist ekki vera nógu langur tími því að við fórum til Issie að gera hárið á okkur og enduðum allar í halarófu að gera hárið á hvorri annari en vorum samt á mörkunum með að vera of sein. Allavega loksins vorum við tilbúnar, allar með fínt hár og svoleiðis og fórum af stað. Til að bæta gráu ofan á svart að þá var hellidemba úti þannig að allar hárgreiðslur fóru út um allt út af rigningunni. En allavega að þá fórum við að borða á steikhúsi fyrir ballið og var það ekkert smá gott. Þetta kvöld var alveg æðislegt.
Þá er komið að sundmótinu :)
Við áttum að vera komin upp í skóla klukkan hálf 7 og rútan fór af stað um korter í 7. það tók í kringum hálftíma að keyra þar sem að sundmótið var og var ekkert smá mikill fjöldi af fólki þarna. Það þurfti að skipta upphitunum niður í 4 parta til að allir kæmust fyrir. Á þessu móti voru 24 skólar að keppa og í kringum 548 nemendur. Allavega að þá eru amerísk sundmót í rauninni ekki neitt mikið öðruvísi heldur en þau íslensku nema það að það er ekki keppendaherbergi, þú verður sjálf/ur að fylgjast með hvaða grein er í gangi en þú sérð ekki inn í laugina. Á þessu móti þá vorum við með sérstakan stað á gangi skólanna þannig að við sáum sundlaugina ekki þannig að enginn gat verið mikið að fylgjast með hvaða grein væri í gangi. Svo er taflan sem að segir hvaða grein er í gangi og hver tíminn þinn var ekki með nafnið þitt á henni þannig að þú verður að muna sjálf/ur í hvaða grein,riðli og hvaða braut þú ert á. Allavega þá byrjaði ég að synda 50yards flug í 200yards fjórsunds boðsundi og synti það á 31 sekondu :) veit ekki alveg hvort að það sé góður tími en ég held að það sé alveg ágætur tími fyrir yards :). eftir það þurfti ég að bíða í kringum 1 og hálfan tíma þangað til að ég synti næst. Næsta greinin mín var 100 flug. Ég synti það á 1.12.36 og nældi mér í 2. sætið wohooo!. Eftir flugið beið mín önnur löng bið þangað til að ég átti að synda 100 bak. Ég synti 100 bak á 1.20.60 sem að er bæting á tímanum mínum í 100m (ég breytti tímanum úr yards yfir í metra). Eftir baksundið var ég búin. Á íslandi þegar að við höfum sundmót þá splittum við oftast greinunum niður á laugardag og sunnudag og stundum seinnipart föstudags en þarna þá var þetta allt sett niður á einn dag þannig að við vorum ekki komin aftur heim fyrr en hálf 7 þannig að þetta sundmót tók í kringum 12 tíma, eða sundmótið sjálft tók í kringum 11 tíma.
ekki meira í bili
-Sunneva
Frábært hjá þér til hamingju með verðlaunasætið, gaman að sjá hvað það er gaman hjá þér.
ReplyDeleteHlakka til að heyra í þér í dag.
Kv. Pabbi
Homecoming og verðlaunasæti, allt að gerast. Til hamingju með verðlaunasætið og vonandi stóð homecoming undir væntingum. Flott hvað allt gengur vel :).
ReplyDeleteKveðja
Mamma